Fréttasafn



20. sep. 2019 Almennar fréttir Efnahagsmál Orka og umhverfi

Fjölmennur stofnfundur

Fjölmennt var á stofnfundi Samstarfsvettvangs um loftslagsmál og grænar lausnir sem var haldinn í gær þegar hátt í tvö hundruð fundarmenn voru viðstaddir. Sigurður Hannesson og Unnur Brá Konráðsdóttir sem eru formenn vettvangsins settu stofnfundinn. Því næst flutti forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir ávarp og sagði hún meðal annars að mannkynið væri í kapphlaupi við tímann en farsæld þjóða til framtíðar muni ráðast af því hvernig þeim takist að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, auka kolefnisbindingu og ná árangri í baráttunni gegn loftslagsvánni. „Þá mun líka skipta miklu máli hvernig samfélög takast á við afleiðingar þeirra loftslagsbreytinga sem munu verða. Í samstarfi atvinnulífs og stjórnvalda þurfum við að lágmarka kolefnisspor þeirrar vöru og þjónustu sem við bjóðum upp á, bæði hér heima fyrir og á erlendum mörkuðum. Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um grænar lausnir er innblásinn af bjartsýnis- og sóknaranda gagnvart stórri áskorun og trú á nýsköpun.“

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, sagði meðal annars í sínu ávarpi að grænar lausnir spretti upp í fyrirtækjum landsins og skapi ómæld útflutningsverðmæti. „Atvinnulífið styður eindregið markmið um kolefnishlutleysi hér á landi bæði með því að draga úr losun kolefnis og að auka bindingu þess í jarðlögum og gróðri.“

Þá rakti Eggert Benedikt Guðmundsson, forstöðumaður vettvangsins, hlutverk vettvangsins, sem er þríþætt. Í fyrsta lagi að efla samstarf atvinnulífs og stjórnvalda við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og stuðla að kolefnishlutleysi árið 2040. Í öðru lagi mun vettvangurinn vinna með fyrirtækjum að markaðssetningu grænna lausna á alþjóðamarkaði. Í þriðja lagi er vettvangnum ætlað að styðja við orðspor Íslands sem leiðandi lands á sviði sjálfbærni.

Að samstarfsvettvanginum standa forsætisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið, utanríkisráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Orkuklasinn, Viðskiptaráð Íslands, Bændasamtök Íslands, háskólar og Íslandsstofa, auk fjölda fyrirtækja. Samstarfsvettvangurinn er hýstur innan Íslandsstofu og vinnur í nánu samstarfi við hana.

Frettabladid.is / mbl.is / Vísir / RÚV, 19. september 2019.

Hér er hægt að horfa á útsendingu frá fundinum.

Samstarfsvettvangur-19-09-2019-1-Unnur Brá Konráðsdóttir og Sigurður Hannesson eru formenn Samstarfsvettvangs um loftlagsmál og grænar lausnir.

Samstarfsvettvangur-19-09-2019-5-Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, flutti ávarp.

Fundur-005Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, flutti ávarp.

Fundur-001