Fræðslufundur um mannvirkjalög
Mannvirkjasvið SI boðar til fræðslufundar fyrir félagsmenn um mannvirkjalög nr. 160/2010, síðustu breytingar á lögunum og stöðu á innleiðingu. Fundurinn verður haldinn á Zoom miðvikudaginn 19. maí kl. 15.00-16.00.
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.
Dagskrá
- Sandra Hlíf Ocares, framkvæmdastjóri Byggingavettvangsins – hvers vegna var lögunum breytt?
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI – helstu breytingar
- Herdís Hallmarsdóttir, lögfræðingur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun – staðan á innleiðingu
- Spurningar og umræður
Fundarstjóri er Eyrún Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI.