„Þetta er algjörlega fyrirséð þróun sem Samtök iðnaðarins hafa ítrekað varað við. Sveitarfélög hafa mörg á undanförnum árum aukið gjaldtöku verulega, ríkið er að auka skattlagningu á íbúðauppbyggingu og vextir hafa verið mjög háir. Afleiðingarnar blasa nú við í verulegum samdrætti í uppbyggingu íbúða,“ segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI í samtali við Morgunblaðið um niðurstöður nýrrar talningar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á íbúðum í byggingu.
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að íbúðum í byggingu hér á landi hafi fækkað um ellefu prósent frá því í mars og horfur séu á að færri íbúðir verði fullbúnar á næstu tveimur árum en áður hafi verið gert ráð fyrir. Samtök iðnaðarins segi þróunina fyrirséða og kalli eftir viðbrögðum stjórnvalda.
Þá kemur fram í fréttinni að Sigurður segir nauðsynlegt að ríki, sveitarfélög og byggingariðnaðurinn taki höndum saman um aðgerðir til að snúa þróuninni við. Hann segir þó jákvæð teikn á lofti hjá nýkjörnum sveitarstjórnum víða um land sem hafi lækkað gjöld. „En jafnframt þarf breyttar áherslur í skipulagsmálum og þjóðarsátt milli aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera um umbætur sem skapa stöðugleika til lengri tíma.“
Sigurður segir jafnframt í Morgunblaðinu að mikilvægt sé að stjórnvöld falli frá fyrirhugaðri lækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á byggingarstað, úr 35 prósentum í 20 prósent. „Aðeins þannig tryggjum við nægjanlega íbúðauppbyggingu og náum verðbólgu og vöxtum niður.“
Morgunblaðið, 23. september 2026.




