Fréttasafn



4. feb. 2019 Almennar fréttir

Framboðsfrestur rennur út á fimmtudaginn

Frestur til að senda inn framboð til formanns og stjórnar SI er til fimmtudagsins næstkomandi 7. febrúar. Bréf hefur verið sent á félagsmenn sem segir neðangreint:

Ákveðið hefur verið að halda Iðnþing 7. mars næstkomandi. Í tengslum við Iðnþing fara fram rafrænar kosningar, þ.e. kosið er til formanns, stjórnar og fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins.

Auglýst er eftir framboðum til þessara trúnaðar­starfa. Framboð verða að hafa borist eigi síðar en 7. febrúar nk. til skrifstofu Samtaka iðnaðarins á tölvupóstfangið bjorg@si.is. Eftir að framboðsfresti lýkur verða frambjóðendur kynntir á vefsíðu SI og því er óskað eftir að frambjóðendur sendi mynd og stuttan kynningartexta. 

Um kjör formanns og stjórnar 

Í 7. kafla laga Samtaka iðnaðarins segir:

Stjórn SI skipa tíu menn, formaður og níu meðstjórnendur. Formaður er kosinn sérstaklega til eins árs í senn, en meðstjórnendur til tveggja ára og ganga því fjórir þeirra út annað árið en fimm hitt. Við kjör meðstjórnenda hljóta þeir fjórir eða fimm sem flest atkvæði hljóta, kosningu sem stjórnarmenn til tveggja ára. Þeir menn sem næstir koma að atkvæðamagni eru réttkjörnir varamenn og skulu taka sæti aðalmanna í stjórn, í samræmi við atkvæðafjölda á Iðnþingi. 

Kjörgengir eru þeir einir sem sinna daglegum stjórnunarstörfum eða sitja í stjórn hjá félagsaðila.

Að þessu sinni er kosið um fjögur sæti meðstjórnenda auk formanns.

Hver félagsaðili hefur atkvæði í hlutfalli við greidd félagsgjöld ársins 2018. Hverjum heilum 1.000 krónum í greiddum félagsgjöldum fylgir eitt atkvæði.

Sérstök athygli skal vakin á því að lög SI gera ráð fyrir að þau iðngreina- og meistarafélög, sem gerst hafa aðilar að SI fyrir hönd félagsmanna sinna, fari með atkvæðisrétt þeirra. Vilji einstaka félagsmaður iðngreina- eða meistarafélags fara með sitt eigið atkvæði eða vilji einstök félög hafa þann hátt á að einstakir félagsmenn þeirra fari með sín atkvæði sjálfir er nauðsynlegt að tilkynna það skrifstofu SI eigi síðar en 21. febrúar næstkomandi.

Ítrekað skal að allir félagsmenn hafa rétt til setu á Iðnþingi og eru kjörgengir í formanns- og stjórnarkjöri óháð því hvort meistara- eða iðngreinafélög, sem þeir eru aðilar að, fara með atkvæði fyrir þeirra hönd.

Um kjör til fulltrúaráðs Samtaka atvinnulífsins

Í 9. kafla laga Samtaka iðnaðarins segir:

Kjör fulltrúa SI í fulltrúaráð SA fer fram á Iðnþingi. Þátt í þeim kosningum geta tekið aðildarfyrirtæki SI að því marki sem þau hafa ekki ákveðið að tilnefna eigin fulltrúa skv. lögum SA þar um. Þeir sem óska eftir að vera í kjöri skulu senda kjörnefnd SI tilkynningu um framboð sitt minnst 20 dögum fyrir Iðnþing. Berist færri framboð en nemur fjölda þeirra sem kjósa á, skal kjörnefnd gera tillögu til stjórnar SI um skipan í fulltrúaráð SA. Þann lista skal leggja fram til samþykktar á Iðnþingi.

Ekki er endanlega ljóst hve marga fulltrúa SI skal kjósa en þeir eru nú 33. Fyrirtæki, sem geta og vilja tilnefna sína fulltrúa beint í ráðið, verða að tilkynna það til skrifstofu SA fyrir 14. febrúar nk. í samræmi við lög SA.

Eigi síðar en hálfum mánuði fyrir Iðnþing verða sendir út atkvæðaseðlar ásamt leiðbeiningum um tilhögun kosninganna.