Fréttasafn



14. ágú. 2019 Almennar fréttir Mannvirki

Framkvæmdir á Keflavíkurflugvelli skapa 300 ársstörf

Í Markaðnum í dag segir að fyrirhugaðar framkvæmdir Bandaríkjahers og Atlantshafsbandalagsins (NATO), sem áætla að verja samtals um fjórtán milljörðum króna til uppbyggingar og viðhalds á varnarmannvirkjum hér á landi á næstu árum, munu skapa rúmlega þrjú hundruð ársstörf á svæðinu á meðan á framkvæmdum stendur og meira þegar horft er til afleiddra starfa. Þar er vitnað til þess sem kemur fram í  nýrri greiningu Samtakaiðnaðarins (SI) um gildi erlendra fjárfestinga nú þegar íslenska hagkerfið er að sigla inn í samdráttarskeið. 

Gjaldeyristekjur bygginga- og mannvirkjageira aukast til muna

Í fréttinni segir að atvinnuleysi á Suðurnesjum hafi aukist verulega að undanförnu og mældist 6,3 prósent í júní síðastliðnum á sama tíma og landsmeðaltalið var 3,4 prósent. Þannig hafi atvinnuleysi í Reykjanesbæ tvöfaldast á skömmum tíma. Þá segir að á það sé bent í greiningu samtakanna, eins og fjallað hafi verið um í fjölmiðlum, að samkvæmt fjárhagsáætlun bandaríska flughersins verði um 90 milljónum Bandaríkjadala, jafnvirði rúmlega tíu milljarða króna, varið til framkvæmda í varnarmannvirkjum á Keflavíkurflugvelli á árunum 2019 til 2023. Þar sé um að ræða stækkun flughlaðs, byggingu þvottastöðvar fyrir flugvélar og endurbætur akstursbrauta, flugvélastæða og ljósakerfis á vellinum og breytingu á flugskýli. Við bætast síðan framkvæmdir á vegum NATO fyrir 4,5 milljarða króna – uppbyggingu á flugvellinum og uppfærslu á ratsjárkerfum umhverfis landið – en áætluð kostnaðarþátttaka íslenska ríkisins í því verkefni sé um 400 milljónir króna. Að verkinu munu standa meðal annars íslensk fyrirtæki í byggingum og mannvirkjagerð og munu gjaldeyristekjur þeirra, að því er segir í greiningu SI, aukast til muna við þetta en þær voru um þrír milljarðar á síðasta ára.

Mikilvægt að einkaaðilar komi að fjárfestingum í innviðum

Jafnframt kemur fram í fréttinni að það sé mat Samtaka iðnaðarins að fyrirhugaðar fjárfestingar í mannvirkjagerð á Keflavíkurflugvelli á vegum bandaríska hersins og NATO sé „kærkomið mótvægi við niðursveifluna í efnahagslífinu sem nú er hafin en nýleg áfall í ferðaþjónustu hefur meðal annars komið fram í ört vaxandi atvinnuleysi, ekki síst á Suðurnesjum.“ Þá er nefnt að í greiningu SI sé mikilvægt að einkaaðilar komi að fjárfestingu í innviðum en undir lok síðustu aldar varð talsverð aukning í slíkum fjárfestingum víða um heim. Þar sé um að ræða að gerður sé samningur milli opinberra aðila og einkaaðila um að veita almenningi ákveðna þjónustu á sviði innviða þar sem einkaaðilinn taki á sig áhættu gegn gjaldi. Kostir slíkrar samvinnu, að því er segir í greiningunni, séu meðal annars þeir að hið opinbera sé ekki sjálft með bundið fé í innviðum og geti því nýtt fjármuni sína í önnur verkefni. Hér á landi sé uppsöfnuð þörf fyrir nýfjárfestingar og viðhald í vegakerfinu umtalsverð. Einnig segir að samtökin bendi á að samgönguráðherra hafi sagt að þar vanti yfir 220 milljarða króna en miðað við nýsamþykkta fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar séu fyrirhugaðar framkvæmdir hins opinbera á þessu sviði einungis um 42 prósent af fjárfestingarþörfinni. „Í þessu ljósi er full þörf á að skoða aðrar lausnir,“ að mati SI.

Markadurinn-14-08-2019

Markaðurinn/ Vísir, 14. ágúst 2019.