Mannvirkjaráð Samtaka iðnaðarins hefur verið virkjað að nýju í ljósi umfangsmikilla breytinga sem fram undan eru á starfsumhverfi mannvirkjageirans. Ráðið verður mikilvægur vettvangur fyrir sameiginlega yfirsýn, umræðu og stefnumótun greinarinnar vegna breytinga á lögum um mannvirki, skipulagslögum og heildarendurskoðunar byggingarreglugerðar. Í ráðinu sitja Gylfi Gíslason, Sigþór Sigurðsson, Ólafur Daníelsson, Sandra Rán Ásgrímsdóttir, Þórhildur Þórhallsdóttir, Halldór Eiríksson, Jón Sigurðsson, Pétur H. Halldórsson, Sólveig Margrét Kristjánsdóttir, Pétur Kristjánsson, Sigurður Hannesson, Karl Andreassen, Þorsteinn Víglundsson, Hjörleifur Stefánsson og Jón Eðvald Malquist.
Mannvirkjaráð SI er samstarfsvettvangur innan samtakanna sem hefur það hlutverk að stuðla að umbótum í mannvirkjaiðnaði, sjálfbærri þróun hans, jákvæðri ímynd og heilbrigðu starfsumhverfi, atvinnulífinu og samfélaginu til hagsbóta. Ráðið fjallar um málefni sem varða heildarhagsmuni atvinnurekenda í mannvirkjagerð með það að markmiði að bæta starfsumhverfi greinarinnar, stuðla að framförum og auka skilvirkni og framleiðni.
Fram undan eru stór verkefni sem munu hafa veruleg áhrif á starfsemi fyrirtækja í mannvirkjageiranum. Áform um breytingar á lögum um mannvirki og skipulagslögum hafa þegar verið kynnt og vinna við frekari útfærslu breytinganna stendur yfir. Samhliða því stendur yfir heildarendurskoðun byggingarreglugerðar. HMS hefur frá því í sumar kynnt einstaka hluta nýrrar reglugerðar og gert er ráð fyrir að reglugerðin í heild sinni fari í opinbert samráð í byrjun næsta árs.
Mannvirkjaráð SI mun halda utan um þessa vinnu og móta heildarstefnu. Jafnframt verður sérþekking félagsmanna virkjuð með vinnuhópum sem rýna einstaka hluta byggingarreglugerðarinnar og önnur tæknileg álitaefni eftir því sem þörf krefur.
Markmiðið er að vinna jafnt og þétt að yfirferð breytinganna á næstu mánuðum þannig að sjónarmið atvinnulífsins komi snemma inn í vinnuna. Með því verður greinin jafnframt betur undirbúin þegar ný byggingarreglugerð kemur í heild sinni til umsagnar.
Í Mannvirkjaráði SI eiga sæti fulltrúar Félags ráðgjafarverkfræðinga, Félags innviðaverktaka, Mannvirkis - félags verktaka, Meistaradeildar SI, Samtaka arkitektastofa og stjórnar SI. Með ráðinu kemur þannig saman breið þekking úr ólíkum hlutum mannvirkjageirans.
Á fyrsta fundi nýs Mannvirkjaráðs SI sem haldinn var fyrir skömmu var farið yfir stöðu helstu mála og hvernig haga skuli vinnunni næstu mánuði. Ráðið mun funda reglulega og fylgja breytingunum eftir eftir því sem þær þróast.



