Fréttasafn



23. sep. 2024 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Fundur HMS og SI um stöðu íbúðauppbyggingar

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og Samtök iðnaðarins boða til fundar um stöðuna á húsnæðismarkaðinum þriðjudaginn 24. september kl. 12.00 í Borgartúni 21. Yfirskrift fundarins er Staða íbúðauppbyggingar - framtíðarhorfur. 

Á fundinum verða kynntar niðurstöður talningar HMS á íbúðum í byggingu um allt land og munu SI fara yfir hvernig staðan á húsnæðismarkaði horfir við byggingariðnaðinum.

  • Elmar Erlendsson, framkvæmdastjóri húsnæðissviðs HMS. Staða íbúðauppbyggingar.
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdarstjóri SI. Byggjum í takt við þarfir.

Fundarstjóri verður Róbert Smári Gunnarsson, sérfræðingur hjá HMS.

Fundurinn verður haldinn í húsakynnum HMS í Borgartúni 21 og opnar húsið kl. 11.45. Léttar veitingar verða í boði fyrir fundargesti.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Hægt er að nálgast streymi á vef HMS.