Fréttasafn



26. sep. 2022 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Fundur um fyrirhugaðar breytingar á úrvinnslugjaldi

Rafrænn fundur um fyrirhugaðar breytingar á úrvinnslugjaldi fer fram föstudaginn 30. september nk. kl. 10.30. Hér er hægt að skrá sig til að fá sendan hlekk á fundinn. Það eru Samtök iðnaðarins, Félag atvinnurekenda, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu sem standa í sameiningu að fundinum þar sem Ólafur Kjartansson, framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs, mun kynna þær breytingar sem eru í farvatninu en einnig forsendur breytinganna. 

Úrvinnslugjald er bæði lagt á vörur við innflutning og innlenda framleiðslu. Tekjur af gjaldinu renna í gegnum ríkissjóð til Úrvinnslusjóðs sem ráðstafar þeim m.a. til einkaaðila og sveitarfélaga sem meðhöndla úrgang. Úrvinnslusjóði ber að ná tilteknum markmiðum um endurnýtingu og endurvinnslu úrgangs. Í stuttu máli tekur Úrvinnslusjóður yfir svokallað framleiðendaábyrgð, þ.e. ábyrgð innflytjenda og framleiðenda á úrgangi vegna söluvara, þ.m.t. umbúða, og tryggir með fjárframlögum að úrgangurinn rati í réttan farveg.

Um næstu áramót taka gildi lög sem hafa það í för með sér að Evrópuskuldbindingar sem snúa að hringrásarhagkerfinu verða innleiddar í innlendan rétt. Í þeim felst m.a. að lögð verður skylda á innflytjendur og framleiðendur ýmissa vara til að fjármagna úrvinnslu úrgangs fleiri vöruflokka en áður. Jafnframt ber þessum aðilum að fjármagna sérstaka söfnun heimilisúrgangs en samhliða verða merkingar sorptunna samræmdar um allt land, þeim fjölgað, ásamt fjölgun íláta á grenndarstöðvum. Afleiðingar breytinganna munu annars vegar koma fram í hækkun fjárhæða úrvinnslugjalds og hins vegar munu fleiri vöruflokkar en áður bera gjaldið.

Hér er hægt að nálgast upptöku frá fundinum:

https://vimeo.com/756374363

SVTH-Vidburdur-Haust-2022-2