Fundur um stöðu framkvæmda hjá Nýjum Landspítala
Nýr Landspítali, NLSH, býður félagsmönnum SI til Markaðsmorguns miðvikudaginn 19. febrúar á Grand Hótel Reykjavík kl. 9-10.30.
Í upphafi fundarins verða flutt nokkur örerindi og í kjölfarið verða lykilstarfsmenn NLSH boðnir og búnir til að ræða við fundarmenn og svara fyrirspurnum um verkefni NLSH.
Áherslan verður á:
- Stöðu framkvæmda NLSH
- Helstu framkvæmdaverkefni NLSH á næstunni og innkaupaverkefni þeim tengd
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.