Fréttasafn



20. feb. 2021 Almennar fréttir

Hlaupum hraðar - slítum fjötrana og sækjum tækifærin

Hlaupum hraðar –  slítum fjötrana og sækjum tækifærin er yfirskrift Iðnþings 2021 sem verður í beinni útsendingu fimmtudaginn 4. mars kl. 13.00-15.00. Landsmönnum öllum er boðið á þingið. Það er mikilvægt að leggja línur og hvetja til þess að störfum verði fjölgað og verðmæti aukin. Á Iðnþingi 2021 verður kastljósinu beint að þeim hindrunum sem ryðja þarf úr vegi á næstu 12 mánuðum til að mögulegt verði að sækja þau tækifæri sem geta skapað auknar gjaldeyristekjur og aukið nauðsynlega viðspyrnu í efnahagslífinu. 

Hér er hægt að skrá sig.