Fréttasafn



22. nóv. 2024 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki Starfsumhverfi

Kallað eftir fyrirsjáanleika í opinberum framkvæmdum

Jónína Guðmundsdóttir, Karl Andreassen og Þorsteinn Víglundsson sem öll sitja í stjórn SI skrifa grein á Vísi þar sem þau kalla eftir fyrirsjáanleika í opinberum framkvæmdum. Þau segja að staða innviða á Íslandi kalli á tafarlausar aðgerðir og að forgangsraða þurfi fjárfestingum í innviðum og tryggja fyrirsjáanleika í framkvæmdum til að mæta þörfum atvinnulífsins og samfélagsins. Í greininni kemur fram að samkvæmt skýrslu Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga um ástand og framtíðarhorfur innviða hafi ófullnægjandi fjárfesting leitt til umfangsmikillar viðhaldsskuldar, sem metin sé á 420 milljarða króna. Þau segja það verkefni bíða nýrrar ríkisstjórnar að bæta stöðu innviða svo að unnt verði að styðja við fjölbreytta verðmætasköpun og auka samkeppnishæfni landsins.​​

Tryggja þarf eftirfylgni með áformum stjórnvalda

Í greininni vísa þau í að í könnun  meðal stjórnenda verktakafyrirtækja sem sýnir að heilt yfir bera stjórnendur verktakafyrirtækja lítið traust til áforma stjórnvalda um innviða- og húsnæðisuppbyggingu eða 71% þeirra, 53% stjórnendanna segjast bera mjög lítið traust til fyrirheita stjórnvalda og 18% lítið. Þau segja að tryggja þurfi betri eftirfylgni með áformum stjórnvalda en áætlanir þeirra hafa oft ekki gengið eftir. Samgönguáætlun sé dæmi um það en nú um stundir sé engin fimm ára aðgerðaráætlun í gildi og Vegagerðin hafi ekki boðið út stórt verkefni í rúmt ár. Þetta hafi dregið úr trúverðugleika. Eins nefna þau að Útboðsþing SI, Mannvirkis – félags verktaka og Samtaka innviðaverktaka, fari fram í upphafi hvers árs þar sem opinberir verkkaupar kynni áform ársins. Undanfarin ár hafi komið í ljós að mikill munur sé á þeim áformum sem kynnt séu og þeim verkefnum sem raunverulega fari af stað. Einungis helmingur fyrirheita um útboð sem gefin hafi verið í upphafi árs 2023 voru efnd.

Sparnaður fyrir skattgreiðendur

Þá segja greinarhöfundar að á nýju kjörtímabili þurfi einnig að ráðast í það verkefni að móta bætta umgjörð innviðauppbyggingar en slík vinna muni leiða til sparnaðar fyrir skattgreiðendur. Stjórnendur verktakafyrirtækja segi að ófyrirsjáanleiki og sveiflur í opinberum innviðaframkvæmdum hafi aukið kostnað verulega. 91% stjórnenda telja að með bættum fyrirsjáanleika gætu þeir boðið allt að 11% lægra verð í opinber útboð. Þetta séu umtalsverðar fjárhæðir ef litið sé til þess að heildarfjárfestingar í innviðum hins opinbera séu áætlaðar 175 milljarða króna í ár. 11% lækkun á þeim kostnaði væri 19 milljarða króna sparnaður sem jafngildir byggingu einnar Ölfusárbrúar á ári. Þau segja að miklar og ófyrirséðar sveiflur í umfangi framkvæmda milli ára geri verktakafyrirtækjum einnig erfitt fyrir þegar komi að áætlanagerð og skipulagningu verkefna fram í tímann. 88% stjórnenda verktakafyrirtækja nefna að of stuttur undirbúningstími valdi auknum kostnaði við verklegar framkvæmdir á vegum hins opinbera en 9% telja að svo sé ekki. Stjórnendurnir segja að þeir gætu boðið tæplega 10% lægra í opinberar framkvæmdir ef nægur undirbúningstími væri til staðar.

Ný ríkisstjórn móti heildstæða stefnu fyrir uppbyggingu innviða

Höfundar greinarinnar segja að nauðsynlegt sé að ný ríkisstjórn móti heildstæða stefnu fyrir uppbyggingu innviða sem taki mið af raunverulegri viðhaldsþörf og þjóðhagslegri arðsemi. Verkefni á borð við viðhald þjóðvegakerfisins, sem þarfnist 18 milljarða króna árlega til að halda núverandi kerfi í horfinu, sýni mikilvægi stöðugrar fjármögnunar​​. Þar fyrir utan þurfi fjármagn til nýframkvæmda en aukin umferð samhliða vexti samfélagsins og atvinnuvega kalli á bætta innviði.

Hvetja stjórnvöld til samvinnu við atvinnulífið til að byggja upp trausta innviði

Þá segja þau í niðurlagi greinarinnar að Samtök iðnaðarins leggi áherslu á mikilvægi þess að starfsumhverfi mannvirkjagerðar hér á landi sé fyrirsjáanlegt og stöðugt. Því kalli samtökin eftir aukinni skilvirkni í skipulags- og leyfisveitingarferlum, að stefnumörkun sé skýr og að áætlanagerð og fjármögnun til lengri tíma sé tryggð. Hið síðastnefnda sé forsenda þess að opinberir verkkaupar geti viðhaft fyrirsjáanleika í framkvæmdum gagnvart markaðnum til að tryggja hagkvæmni. Samtök iðnaðarins hvetji ný stjórnvöld til samvinnu við atvinnulífið til að byggja upp trausta innviði sem séu undirstaða verðmætasköpunar og öflugs hagkerfis.

Vísir, 22. nóvember 2024.