Fréttasafn



12. feb. 2025 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki Starfsumhverfi

Komið í óefni í uppbyggingu íbúða á höfuðborgarsvæðinu

Svanur Karl Grjetarsson, forstjóri byggingafélagsins MótX, sem er aðildarfyrirtæki SI segir í frétt Morgunblaðsins að komið sé í óefni í uppbyggingu íbúða á höfuðborgarsvæðinu vegna lóðaskorts og ofuráherslu á þéttingu byggðar. Tilefni fréttarinnar er umfjöllun Morgunblaðsins síðastliðinn föstudag og laugardag um lóðaskort og aukna gjaldtöku af nýjum íbúðum. Þá var rætt við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, um nýja könnun sem gerð var meðal félagsmanna SI þar sem kemur fram að meirihluti aðspurðra telur lóðaskort hamla uppbyggingu. Sigurður segist áætla að hækkun gatnagerðargjalda í Reykjavík muni auka kostnað við 85 fermetra íbúð um eina og hálfa milljón. Þá sagði Þorvaldur Gissurarson, for­stjóri ÞG Verks, í frétt Morgunblaðsins aukna gjaldtöku af nýjum íbúðum ekki hafa skilað betri innviðum og að engar lóðir væru nú í boði á eðlilegu verði á höfuðborgarsvæðinu heldur væru nær eingöngu í boði lóðir á uppsprengdu verði. Þá kemur fram í Morgunblaðinu að Helgi S. Gunnarsson, fyrrverandi forstjóri Heima (áður Regins), taki undir með Þorvaldi að aukin gjaldtaka hefði ekki skilað betri innviðum.

Svanur segir meðal annars þetta í Morgunblaðinu: „Lóðaframboð og verð á lóðum hjá sveitarfélögum hafa verið hitamál undanfarin ár. Staðan er sú að framboð lóða er lítið, verð þeirra hátt og skilmálar oft ósveigjanlegir. Þetta hefur leitt til þess að þéttingarstefnan, sem átti að stuðla að hagkvæmari, sjálfbærari og umhverfisvænni uppbyggingu, virðist komin í algjört öngstræti. Sveitarfélög, sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, hafa síðustu árin haldið fast um lóðir og boðið þær út í skömmtum. Þetta hefur gert það að verkum að framboð nær aldrei að mæta eftirspurn. Þegar lóðir eru loks boðnar út er verð þeirra oft mjög hátt, sem veldur því að byggingarkostnaður rýkur upp og skilar sér beint út í fasteignaverðið.“

Morgunblaðið / mbl.is, 11. febrúar 2025.

Morgunbladid-11-02-2025_2