Fréttasafn



17. jan. 2018 Almennar fréttir Nýsköpun

Kynningarfundur fyrir félagsmenn SI um nýsköpunarverkefni

Samtök iðnaðarins standa fyrir kynningarfundi fyrir félagsmenn SI um Tækniþróunarsjóð og skattfrádrátt vegna rannsókna- og þróunarverkefna þriðjudaginn 23. janúar kl. 15.00-16.30 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35 á 1. hæð. Fundarstjóri er Bryndís Skúladóttir, sviðsstjóri framleiðslusviðs SI.

Dagskrá

  • Styrktarflokkar Tækniþróunarsjóðs og helstu atriði er varða skattfrádrátt til fyrirtækja sem eru eigendur rannsókna- og þróunarverkefna. Sigurður Björnsson, Rannís.
  • Reynsla fyrirtækja af sjóðnum og skattalegum hvötum til nýsköpunarfyrirtækja. Fulltrúar Oculis og Solid Clouds. 

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.