Beint í efni

Samspil sjáv­ar­út­vegs og tækni- og hug­verka­iðn­aðar eykur forskot Íslands

Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI, flutti erindi um samspil sjávarútvegs og tækni- og hugverkaiðnaðar á Sjávarútvegsráðstefnunni.

Sjávarútvegsdagurinn

Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar námu 369 milljörðum króna árið 2025 og hafa áttfaldast frá 2008. Þetta kom fram í erindi Erlu Tinnu Stefánsdóttur, viðskiptastjóra tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI, á Sjávarútvegsráðstefnunni sem fór fram í Hörpu fyrir skömmu. Þar fjallaði hún um hvernig samspil sjávarútvegs og tækni- og hugverkaiðnaðar eykur forskot Íslands.

Í máli Erlu Tinnu kom fram að í fyrra hafi tækni- og hugverkaiðnaður staðið undir 18,6% af útflutningstekjum landsins, en hlutfallið hafi verið 7,1% árið 2008. Til samanburðar hafi sjávarútvegurinn skilaði 18,1% útflutningstekna, orkusækinn iðnaður 21,2% og ferðaþjónustan 31,6%. „Stoðirnar eiga ekki að keppa um athyglina, þær eiga að styðja hver aðra. Hvergi sést það betur en í samspili sjávarútvegs og tækniiðnaðar,“ sagði Erla Tinna. Hún benti á að fjölbreyttari útflutningur geri hagkerfið stöðugra því þegar ein stoð verður fyrir höggi beri hinar meira af þunganum.

Þá kom fram í máli Erlu Tinnu að það verði til tvær útflutningsvörur úr sama samstarfinu: verðmætari fiskur og tæknin sem gerði hann verðmætari. Stór hluti verðmætanna sést ekki. Hann liggur í hugbúnaði, myndgreiningu, uppfinningum og hönnun sem verði til þegar verkfræðingar og forritarar vinni með fólki sem þekkir hráefnið og vinnsluna. Næstu áskoranir, fullnýting hráefnis, orkuskipti í flotanum, sjálfvirkni og rekjanleiki, eru að hennar mati fræ að næstu útflutningslausnum. Hún nefndi sem skýrt dæmi fyrirtækið Kerecis sem breytir þorskroði í lækningavöru.

Erla Tinna lagði áherslu á að þróunarstarfið sé hreyfanlegt. „Fiskimiðin fara ekki neitt. En þróunarteymin geta farið.“ Því þurfi stuðningsumhverfi nýsköpunar að vera samkeppnishæft og fyrirsjáanlegt. Þar skipti mestu skattahvatar vegna rannsókna og þróunar, öflugir samkeppnissjóðir á borð við Tækniþróunarsjóð og aðgangur að fjármagni til vaxtar. Grunnurinn væri hæft fólk, en hlutfall nemenda í raunvísinda- og tæknigreinum hér á landi væri langt undir meðaltali. Hún sagði Samtök iðnaðarins fagna áherslum atvinnustefnu stjórnvalda á fyrirsjáanlegan stuðning við rannsóknir og þróun. „Við tökum stjórnvöld á orðinu.“

Hér er hægt að nálgast glærur Erlu Tinnu.

Sjávarútvegsdagurinn
Að erindinu loknu tók Erla Tinna þátt í pallborðsumræðum ásamt Þorsteini Mássyni hjá SFS, Alexandra Leeper hjá Sjávarklasanum, Eiríki Sigurðssyni hjá Hugverkastofu, Sveini Sigurði Jóhannessyni hjá Greenfish og Úlfari Arnórssyni hjá JBT Marel. Ingunn Sigurpálsdóttir hjá Auðnu Tæknitorgi leiddi umræðurnar. Rætt var um hvað þurfi til að næsta stóra tæknilausn sjávarútvegsins verði til hér á landi og fari héðan út í heim.
Sjávarútvegsdagurinn