Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð
Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð fimmtudaginn 24. janúar næstkomandi kl. 8.30-10 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalnum Hyl á 1. hæð. Boðið verður upp á léttan morgunverð. Hér er hægt að skrá sig á fundinn.
Dagskrá
Sigurður Björnsson, sviðsstjóri á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, gerir grein fyrir:
· Styrkjaflokkum Tækniþróunarsjóðs
· Skattfrádrætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar
· Reglugerð um skattaívilnun til erlendra sérfræðinga
Reynsla félagsmanna SI af umsóknaferli Tækniþróunarsjóðs
· Kristinn Aspelund, Ankeri Solutions
· Jón Már Björnsson, Orf Líftækni
Umræður
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.