Fréttasafn



31. mar. 2023 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Lækkun endurgreiðslu getur hækkað verð og fækkað íbúðum

Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmdastjóra SI, í Morgunblaðinu í dag um þau áform í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar að lækka verð á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði úr 60% í 35%. Sigurður segir breytingarnar koma á slæmum tíma fyrir byggingariðnaðinn. „Það á að lækka endurgreiðsluna með þeim rökum að það séu svo mikil umsvif á byggingarmarkaði. Það eru hins vegar blikur á lofti í byggingariðnaði,“ segir hann. Vextir hafi hækkað, sem og laun og verð á aðföngum, og efnahagshorfur versnað. „Svigrúm verktaka er því ekki mikið. Við höfum rætt við félagsmenn sem segja að samanlagt muni þetta leiða til þess að verkefnum verði frestað, eða þau jafnvel slegin af. Það þýðir aðeins eitt: Þegar hagkerfið réttir úr kútnum, eftir eitt til tvö ár, verður ekki nægt framboð af íbúðum. Það liggur því fyrir að forsendur ríkisstjórnarinnar fyrir umræddri lækkun … halda því ekki og munu fyrst og fremst valda byggingaraðilum tjóni og draga úr uppbyggingu, þegar hjólin eiga aftur að fara að snúast.“

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að verð nýrra íbúða gæti hækkað um 3-5% og íbúðum í byggingu fækkað og að þetta sé mat SI ef endurgreiðslan verður lækkuð úr 60% í 35%. Hlutfallið hafi verið hækkað í 100% eftir efnahagshrunið, í því skyni að örva byggingargeirann, en hafi svo lækkað í 60% 2013. Það hafi aftur hækkað í 100% í farsóttinni og gilt til 31. ágúst í fyrra.

Morgunblaðið / mbl.is, 31. mars 2023.

Morgunbladid-31-03-2023