Leiðbeiningar til þeirra sem sinna viðgerðum
Embætti landlæknis hefur gefið út leiðbeiningar til þeirra sem sinna þjónustu, eftirliti og viðgerðum á heimilum eða í fyrirtækjum. Í leiðbeiningunum er gátlisti fyrir útsenda starfsmenn vegna COVID-19 og listað upp hvað þarf að hafa í huga við störf á heimilum annarra eða í fyrirtækjum meðan farsótt geisar. Meðal annars er tiltekið eftirfarandi:
- Nota skal hreinan vinnufatnað/hlífðarfatnað á hverri vakt. Ef fatnaður óhreinkast eða mengast ætti að skipta um fatnað.
- Alltaf skal líta á alla hanska sem mengaða og varast að snerta andlit með þeim. Nota skal hreina vinnuhanska eða einnota hanska við hvert verk. Ef ekki er hægt að skipta um vinnuhanska fyrir hvert verk skal að lágmarki gera það ef mögulegt er að þeir hafi mengast, sérstaklega ef hafa mengast með slími frá öndunarvegum starfsmanns eða óþekktum vökvum á vinnustað.
- Þótt engin veikindi séu þekkt hjá starfsmanni eða þeim sem unnið er hjá er rétt að halda sem mestri fjarlægð allan tímann meðan útsendur starfsmaður er á staðnum, best er að enginn annar sé í rými/herbergi þar sem hann er að störfum.
- Starfsmaður skal reyna að koma sem minnst við yfirborðsfleti, s.s. ljósarofa, með berum höndum. Ef það er óhjákvæmilegt ætti að hreinsa hendur fyrir og eftir slíka snertingu.
Einnig eru leiðbeiningar ef er þekkt hætta á smiti (sóttkví/einangrun á heimili) og ef útsendur starfsmaður er í sóttkví en enginn annar getur sinnt brýnu verkefni.
Á vef Embættis landlæknis er hægt að nálgast leiðbeiningarnar í heild sinni.