Fréttasafn



17. feb. 2025 Almennar fréttir Mannvirki Samtök rafverktaka

Leiðbeiningar um hitastig og taugar í rafmagnstöflum

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur, í samstarfi við fagnefnd Samtaka rafverktaka, Sart, gefið út leiðbeiningar um hitastig og taugar í rafmagnstöflum þar sem m.a. er komið inn á þær kröfur sem gilda, áhrif hita á straumþol tauga og varbúnað, ákvörðun um þversnið töflutauga o.fl.

Í frétt á vef Sart kemur fram að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi á undanförnum misserum borist ábendingar um illa farnar og jafnvel brunnar taugar í rafmagnstöflum. Þetta virðist að einhverju leyti tengjast auknu stöðugu álagi sem hefur í för með sér hækkandi hitastig í töflum.

Þar kemur fram að hár hiti í töflum sé vaxandi vandamál og geti valdið verulegri hættu, hann minnkar straumflutningsgetu töflutauga og getur stytt líftíma búnaðar í töflunni, t.d. var- og rafeindabúnaðar, og í verstu tilfellum valdið bruna. Eitt mikilvægasta atriðið sem töflusmiður þarf að staðfesta og sannreyna er hitastigshækkun innan töflunnar við venjulega notkun. Tilgangurinn er að tryggja rétt val á töflutaugum með tilliti til straumflutningsgetu og að búnaður í töflunni, t.d. var- og rafeindabúnaður, starfi með réttum hætti við það hitastig sem hann er útsettur fyrir.   

Hér er hægt að nálgast leiðbeiningarnar.