Málarameistarafélagið bauð fimm nýja meistara velkomna
Á fjölmennum aðalfundi Málarameistarafélagsins sem fór fram 16. apríl í Húsi atvinnulífsins var stjórn endurkjörin en í henni sitja Kristján Aðalsteinsson formaður, Ólafur Höskuldsson, Gísli Guðmundsson, Jón Vilberg Magnússon og Carl Jóhann Gränz.
Málarameistarafélagið bauð fimm nýmeisturum til kvöldverðar og spjalls að aðalfundarstörfum loknum. Á fundinum var meðal annars kynntur dagur málarans hjá Málningu sem fer fram fimmtudaginn 30. apríl kl 16 og fram eftir kvöldi. Félagsmenn í Málarameistarafélaginu eru hvattir til að mæta.



