Fréttasafn



13. nóv. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Málþing og Hönnunarverðlaun í Iðnó

Hönnunarverðlaun Íslands 2019 verða afhent við hátíðlega athöfn fimmtudaginn 14. nóvember kl. 18.00 í Iðnó en Hönnunarmiðstöð Íslands ásamt Listaháskóla Íslands og Hönnunarsafni Íslands standa að verðlaununum með stuðningi frá Landsvirkjun og Samtökum iðnaðarins. Auk aðalverðlauna verður veitt viðurkenning fyrir Bestu fjárfestingu í hönnun. Tilnefningarnar eru fimm talsins og er hægt að sjá þær hér.

Málþing tengt verðlaununum fer einnig fram í Iðnó sama dag kl. 15-17. Yfirskrift málþingsins er Hannað í hring. Fjallað verður um sjálfbærar byggingar, matarhönnun, hönnun velferðarkerfis, hönnun sjálfbærra efna og hvernig hægt er að skilja og einfalda flókin kerfi með hönnun. Meðal þeirra sem halda erindi eru Halldór Eiríksson, arkitekt/Tark, Guðberg Björnsson, hönnunarstjóri og stofnandi Lauf, Edda Jónsdóttir frá Stafrænni Reykjavík, Katrín María Káradóttir, fatahönnuður og fagstjóri námsbrautar í fatahönnun hjá Listaháskóla Íslands, Kristín María Sigþórsdóttir, vöruhönnuður, og Nils Wiberg frá Gagarín.

Í panel sitja Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Anna María Bogadóttir, arkitekt og lektor í arkitektúr í Listaháskóla Íslands, Andri Snær Magnason, rithöfundur, og Magnús Þór Torfason, lektor í nýsköpunar- og frumkvöðlafræðum hjá Háskóla Íslands. 

Stjórnandi málþingsins er fjölmiðlakonan Fanney Birna Jónsdóttir.