Fréttasafn



25. maí 2020 Almennar fréttir Menntun

Metfjöldi umsókna í meistaranám í öllum deildum HR

Metfjöldi umsókna um meistaranám barst Háskólanum í Reykjavík nú þegar umsóknarfrestur hefur runnið út. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum. Alls bárust 1.426 umsóknir um meistaranám í ár, samanborið við 1.073 á sama tíma í fyrra sem er 33% fjölgun umsókna. Þar af eru 558 innlendar umsóknir og hefur þeim fjölgað um 20% frá 2018. Umsóknum hefur fjölgað milli ára í öllum sex deildum háskólans sem bjóða upp á meistaranám, en mest fjölgun umsókna er í meistaranám í tölvunarfræðideild skólans.

Í tilkynningu skólans kemur fram að framlengdur umsóknarfrestur fyrir grunnnám sé til 15. júní.