Fréttasafn



19. jún. 2025 Almennar fréttir Mannvirki Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði

MIH fagnar vandaðri húsnæðisáætlun Hafnarfjarðar

Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði, MIH, hefur skilað inn umsögn um drög að húsnæðisáætlun Hafnarfjarðarbæjar, mál nr. 1604079. Í umsögninni lýsir stjórn félagsins ánægju með að sveitarfélagið leiti eftir sjónarmiðum hagsmunaaðila við mótun stefnu um húsnæðismál, og fagnar þeirri auknu áherslu sem lögð er á markvissa og gagnadrifna uppbyggingu.

MIH leggur áherslu á að húsnæðisáætlanir gegni lykilhlutverki í því að byggja upp stöðug og sjálfbær samfélög. Í umsögn félagsins er fyrirliggjandi áætlun Hafnarfjarðarbæjar sögð vönduð og veita góða yfirsýn yfir áform um fjölgun íbúa og uppbyggingu lóða. Sérstaklega er fagnað nákvæmri skráningu um stöðu lóða í skipulagsferli og tímasetningar á næstu skrefum. Slíkt gagnsæi skipti verulegu máli fyrir framkvæmdaaðila sem treysti á áreiðanlegar upplýsingar í sinni starfsemi.

MIH varar þó við skorti á byggingarhæfum fjölbýlishúsalóðum í sveitarfélaginu og hvetur til að framkvæmdaáætlunin verði hrint í framkvæmd á tilsettum tíma. Einnig er bent á að nauðsynlegt sé að hefja endurskoðun vaxtamarka hið fyrsta, þar sem núverandi mörk setji ónauðsynlegar skorður við vöxt íbúðabyggðar.

Í umsögninni leggur MIH áherslu á mikilvægi þess að nýta sérfræðiþekkingu iðnaðarfyrirtækja og meistarafélaga við gerð deiliskipulags. Samráð á frumstigum geti komið í veg fyrir að samþykkt skipulag þurfi verulegra breytinga síðar, eins og dæmi séu um í fortíðinni.

Hér er hægt að nálgast umsögn MIH.