Mikil verðbólga og háir vextir heimatilbúinn vandi
Mikil verðbólga og háir vextir eru heimatilbúinn vandi. Framboðshlið hagkerfisins hefur ekki fylgt eftir þörfum atvinnulífsins og landsmanna. Kæla þarf eftirspurnina með háum vöxtum vegna þess að framboðið hefur ekki vaxið eins og þörf er á. Niðurstaðan er að enginn hagvöxtur verður líklegast á þessu ári. Þetta segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í grein í ViðskiptaMogganum með yfirskriftinni Heimatilbúinn vandi. Hann segir að skortur sé á húsnæði og lóðum, innviðum og viðhaldi þeirra, menntuðu vinnuafli og raforku. Áætlanir stjórnvalda um úrbætur hafi verið lagðar fram en of hægt hafi gengið að koma þeim í framkvæmd. Afleiðingin hafi m.a. verið hröð hækkun húsnæðisverðs, verðbólga, háir vextir, hækkandi innviðaskuld, orkuskortur og töpuð tækifæri til aukinnar efnahagslegrar velmegunar samfélagsins.
Næsta ríkisstjórn stuðli að lækkun verðbólgu og vaxta
Ingólfur segir að stjórnendur fyrirtækja í iðnaði telja mikilvægt að næsta ríkisstjórn beiti sér fyrir stöðugu, hagkvæmu og skilvirku starfsumhverfi. Þeir vilja í því sambandi að næsta ríkisstjórn stuðli að lækkun verðbólgu og vaxta, dragi úr byrðum á fyrirtækjum í formi skatta og gjalda, lækki eftirlits- og þjónustugjöld og einfaldi lagaog reglugerðarumhverfi fyrirtækja. Þetta komi meðal annars fram í könnun meðal félagsmanna Samtaka iðnaðarins vegna komandi alþingiskosninga. Hann segir að stöðugt, hagkvæmt og skilvirkt starfsumhverfi bæti samkeppnishæfni og stuðli að aukinni verðmætasköpun. Stöðugleiki skapi skilyrði fyrir samkeppnishæft atvinnu- og efnahagslíf og leggi þannig grunn að fjárfestingum í hagvexti framtíðarinnar. Hagkvæmt starfsumhverfi skapi samkeppnisforskot, það sé þegar álögur skatta og gjalda séu lágar í alþjóðlegum samanburði, sem gefi fyrirtækjum sterkari stöðu í samkeppni við erlenda keppinauta og auki þannig verðmæta- og atvinnusköpun. Þá segir Ingólfur að skilvirkt starfsumhverfi dragi úr sóun og kostnaði, efnahagslífinu til heilla. Hann segir að þetta náist eingöngu með gagnsæju og einföldu regluverki þar sem eftirlit sé fyrirsjáanlegt og ekki óhóflega íþyngjandi. Stjórnvöld skapi heilbrigt og skilvirkt starfsumhverfi með því að tryggja jafnræði fyrirtækja á markaði og dragi úr opinberum samkeppnisrekstri. Með bættum starfsskilyrðum aukist samkeppnishæfni og þar með verðmætasköpun.
Brýnt hagsmunamál allra landsmanna að ná niður verðbólgu og vöxtum
Þá kemur fram í grein Ingólfs að verðbólgan hafi verið mikil undanfarin misseri og vextir einnig. Verðbólgan mælist nú 5,1% og stýrivextir Seðlabankans séu 9%. Þróunin hafi verið í rétta átt undanfarið, þar sem verðbólgan hafi verið á niðurleið og Seðlabankinn sé byrjaður að lækka vexti. En betur má ef duga skal. Í ofangreindri könnun kom fram að 92% stjórnenda fyrirtækja í iðnaði segja að það skipti miklu máli fyrir rekstur þeirra að næsta ríkisstjórn skapi skilyrði fyrir lækkun vaxta og verðbólgu á næsta kjörtímabili. Ekki nema rúmlega 3% segja að það skipti litlu máli. Niðurstöðurnar sýna hversu brýnt hagsmunamál iðnaðarins, og raunar allra landsmanna, er að ná niður verðbólgu og vöxtum.
Stjórnvöld leggi áherslu á að draga úr byrðum á fyrirtæki í formi skatta og gjalda
Einnig segir Ingólfur í greininni að í ljósi ólíkra áherslna flokkanna, sem séu í framboði til Alþingis varðandi skatta og gjöld, séu það mikilvæg skilaboð að stjórnendur iðnfyrirtækja vilja að stjórnvöld leggi áherslu á að draga úr byrðum á fyrirtæki í formi skatta og gjalda. Hann segir að skattar séu háir hér á landi í alþjóðlegum samanburði og bitni það á samkeppnishæfni og verðmætasköpun hagkerfisins. Í könnuninni komi fram að rúmlega 79% stjórnenda fyrirtækja í iðnaði segja að það skipti miklu máli fyrir rekstur þeirra að næsta ríkisstjórn leggi áherslu á að draga úr byrðum á fyrirtæki í formi skatta og gjalda. Ekki nema tæplega 5% segja að það skipti litlu máli.
Skilaboðin frá iðnaðinum er skýr
Ingólfur vekur athygli á því að Samtök iðnaðarins hafi lagt fram 30 umbótatillögur fyrir komandi kosningar. Þær eigi erindi til næstu ríkisstjórnar svo efla megi samkeppnishæfni og verðmætasköpun. Hann segir að ná þurfi verðbólgu og vöxtum niður með aðgerðum í ríkisfjármálum sem efla framboðshlið hagkerfisins, dragi úr álögum skatta og gjalda á fyrirtæki, auki skýrleika og gagnsæi regluverks, hætti að setja íþyngjandi ákvæði í lög umfram lágmarkskröfur við innleiðingu á Evrópuregluverki („gullhúðun“) og einfaldi gildandi regluverk með því að fjarlægja séríslenskar viðbætur („afhúðun“). Einnig sé lagt til að auka gagnsæi í innheimtu gjalda eftirlitsstofnana, fækka og sameina ríkisstofnanir með aukinni hagkvæmni og skilvirkni að leiðarljósi, og aðlaga regluverk nýjum atvinnugreinum þar sem regluverkið þurfi að taka mið af framþróun samfélags og atvinnulífs. Ingólfur segir að skilaboðin frá iðnaðinum séu skýr.
Hér er hægt að lesa grein Ingólfs í heild sinni.
ViðskiptaMogginn, 6. nóvember 2024.
mbl.is, 10. nóvember 2024.