Fréttasafn



2. feb. 2021 Almennar fréttir Félag vinnuvélaeigenda Mannvirki

Nám í jarðvirkjun hefst í Tækniskólanum í haust

Jarðvinna er mikilvægur verkþáttur í byggingaframkvæmdum og mannvirkjagerð af öllu tagi, enda rís engin bygging nema grunnur hennar sé lagður fyrst. Unnið hefur verið að skipulagningu nýrrar námsleiðar í jarðvinnu í samstarfi við Samtök iðnaðarins, Félag vinnuvélaeigenda og Tækniskólann. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Nám í jarðvirkjun mun hefjast hjá Tækniskólanum næsta haust og verður það ætlað bæði nýnemum á framhaldsskólastigi sem og þeim sem þegar starfa í greininni. Námið mun undir búa einstaklinga undir fjölbreytt störf sem felast í jarðvegsvinnu, s.s. efnisflutningar, frágangsvinna og grunnvinna við byggingarlóðir. Skortur hefur verið á nýliðun starfsfólks í því fagi hérlendis og með auknum kröfum um öryggi og gæði, styttri framkvæmdatíma, minna rask, þéttingu byggðar og tækniþróun eykst þörfin sífellt fyrir vel menntað starfsfólk á því sviði.

Á vef Stjórnarráðsins er vitnað til orða Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, sem segir: „Ég fagna því að nemendur geti brátt sótt sér aukna þekkingu á þessu mikilvæga starfssviði. Við viljum skapa tækifæri fyrir fólk á öllum aldri til þess að efla færni sína og sérhæfingu, og mæta þörfum samfélagsins hverju sinni.“