Fréttasafn



4. des. 2019 Almennar fréttir Menntun

Námsbókaútgáfan Iðnú fagnar 70 ára afmæli

Námsbókaútgáfan Iðnú fagnaði 70 ára afmæli í Iðnó þar sem voru saman komnir boðsgestir úr ýmsum áttum sem eiga það sameiginlegt að hafa komið að starfseminni með einum eða öðrum hætti í gegnum tíðina. Í tilkynningu segir að upphaf námsbókaútgáfunnar megi rekja til frumkvöðla iðnskólanna sem komu saman árið 1948 og settu á fót Samband iðnskóla á Íslandi, forvera Iðnmenntar. Ári síðar var Iðnskólaútgáfan stofnuð, nú Iðnú útgáfa, og að henni standa í dag 13 iðn-, tækni- og verkmenntaskólar víðs vegar um landið.

Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans stýrði dagskrá. Fyrstur tók til máls Ársæll Guðmundsson, stjórnarformaður Iðnmenntar og skólameistari Borgarholtsskóla. Hann fór yfir 70 ára sögu Iðnú og þær breytingar sem skólasamfélagið stendur frammi fyrir í dag. Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri Iðnú útgáfu, ávarpaði næst samkomuna og varpaði ljósi á núverandi starfsemi Iðnú auk þess sem hann kynnti gagnvirkar vefbækur. Ásgeir Þór Tómasson, fagstjóri í bakaraiðn, sagði frá tilurð Bakarabókarinnar, sem er viðamesta kennsluefni fyrir bakaraiðn sem komið hefur út á íslensku og Iðnú gefur út sem vefbók. Marín Björg Jónasdóttir, sviðsstjóri iðn- og starfsnáms í Borgarholtsskóla, flutti því næst stutt erindi um hvernig námsefni hefur áhrif á gæði iðn- og starfsnáms. Að lokum fræddi Vilhjálmur Hilmarsson, sérfræðingur í greiningum hjá Samtökum iðnaðarins, gesti um hve mikil þörf er á fólki með iðn-, tækni- og starfsmenntun og lagði áherslu á að ábyrgð menntakerfisins hafi ef til vill aldrei verið meiri ef íslenskt samfélag á að standast samanburð við önnur lönd. Kór Kvennaskólans í Reykjavík söng jólalög og Már Gunnarsson, tónlistarmaður og afreksíþróttamaður, lék frumsamin lög á píanó og söng. Veislugestum gafst svo færi á að bragða á dýrindis veitingum sem bakaranemar frá Menntaskólanum í Kópavogi reiddu fram. 

Á myndinni fyrir ofan eru Marín Björg Jónasdóttir, Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, og Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri Iðunnar. 

Arsaell-GudmundssonÁrsæll Guðmundsson, stjórnarformaður Iðnmenntar og skólameistari Borgarholtsskóla.

Bakaranemar-ur-Menntaskolanum-i-Kopavogi-sau-um-veitingarBakaranemar úr Menntaskólanum í Kópavogi sáu um veitingar.

Gudrun-Petursdottir-Asta-Bergljot-Stefansdottir-Magnus-Ingvarsson-Kristin-Arnalds-og-Sigurdur-ThorarinssonGuðrún Pétursdóttir, Ásta Bergljót Stefánsdóttir, Magnús Ingvarsson, Kristín Arnalds og Sigurður Þórarinsson.

Johannes-Einarsson-Hjalti-Jon-Sveinsson-Heidar-Ingi-svansson-og-Erling-R.-ErlingssonJóhannes Einarsson, Hjalti Jón Sveinsson, Heiðar Ingi Svansson og Erling R. Erlingsson.

Mar-Gunnarsson-lek-frumsamin-logMár Gunnarsson lék frumsamin lög.