Fréttasafn



24. apr. 2019 Almennar fréttir

Námskeið um neyðarlýsingarstaðla

Staðlaráð Íslands stendur fyrir námskeiði um neyðarlýsingarstaðla miðvikudaginn 8. maí næstkomandi fyrir hönnuði brunakerfa, lýsingarhönnuði, raflagnahönnuði, arkitekta, innanhússarkitekta, verkfræðinga, rafvirkja, úttektaraðila og viðhaldsmenn neyðarlýsingarkerfa. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur þekki helstu neyðarlýsingarstaðla og geti notfært sér þá við hönnun, uppsetningu, úttekt og viðhald á neyðarlýsingarkerfum. Námskeiðið fer fram í Skúlatúni 2. Leiðbeinandi er Rósa Dögg Þorsteinsdóttir, lýsingarhönnuður og formaður Ljóstæknifélags Íslands. 

Dagskrá námskeiðsins

12:30-13:15 Yfirlit yfir neyðarlýsingarstaðla - Hugtök og kröfur um búnað
13:15-13:20 Hlé
13:20-14:00 Ferli hönnunar, úttektar og viðhalds
14:15-15:15 Hönnun neyðarlýsingarkerfa - Hverjar eru kröfurnar?
15:15-15:20 Hlé
15:20-16:00 Notkun staðalsins ÍST EN 1838 Lighting application - Emergency lighting
16:00 Samantekt - Námskeiði slitið

Á vef Staðlaráðs er hægt að skrá sig.