Fréttasafn



17. sep. 2024 Almennar fréttir Mannvirki Samtök rafverktaka

Norrænir rafverktakar funda í Færeyjum

Norræn samtök rafverktaka, NEPU, funduðu í Færeyjum í liðinni viku. Fulltrúar Íslands frá Samtökum rafverktaka, Sart, voru Hjörleifur Stefánsson, formaður Sart, og Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Sart. Gestur fundarins var Julie Beaufils, aðalritari EuropeOn, sem eru evrópsk samtök rafverktaka.

Á fundinum var meðal annars fjallað um, undir yfirskriftinni Hvernig á að færa norðrið nær Brussel, hvernig hægt er að efla samstarf þvert á stofnanir norrænu samtakanna og þar með auka áhrif rafiðnaðarins innan ESB sem og að standa betur vörð um starfsumhverfi og hagsmuni rafverktaka.

Einnig var fjallað um notkun á gervigreind í störfum rafverktakafyrirtækja og kynnt dæmi um notkunarmöguleika gervigreindarinnar. Á fundinum kom fram að með markvissri innleiðingu gervigreindar í rekstrarumhverfi rafverktaka væru mikil tækifæri til að draga úr yfirbyggingu og þannig lækka rekstrarkostnað. 

Þá fengu fundarmenn tækifæri til að heimsækja vindorkuver sem rekið er af færeyska orkufyrirtækinu SEV. Í heimsókninni fengu gestirnir greinargóða kynningu á starfsemi og framtíðaráformum fyrirtækisins.

20240910_094546

20240910_101331

20240909_131055