Nýjar upplýsingar um orkuskipti kynntar á fundi í Kaldalóni
Samtök iðnaðarins, Samorka, Landsvirkjun, EFLA og Grænvangur standa fyrir opnum fundi fimmtudaginn 14. nóvember kl. 9.30-10.30 í Kaldalóni í Hörpu þar sem kynntar verða nýjar upplýsingar á vefnum Orkuskipti.is. Yfirskrift fundarins er: Hvar stendur Ísland í orkuframleiðslu og orkunotkun í alþjóðlegum samanburði?
Oft er því fleygt fram að Ísland framleiði mesta orku á mann í heimi. En er það rétt? Og hversu mikla orku framleiðir Ísland í samanburði við Norðurlöndin ef miðað er við stærð landanna? Hvað þarf að gera til þess að ná fram fullum orkuskiptum og hvaða virkjanakostir eru samkeppnishæfir? Á uppfærðum vef orkuskipti.is verður þessum og fleiri spurningum svarað og orkuframleiðsla og orkunotkun Íslands sett í alþjóðlegt samhengi.
Dagskrá
- Hvers vegna að setja Ísland í alþjóðlegt samhengi? Hvað hefur breyst síðustu tvö ár sem kallar á uppfærðan orkuskiptavef? Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, fer stuttlega yfir málið.
- Hvaða nýju upplýsingar er verið að kynna og á hverju byggja þær? Haukur Ásberg Hilmarsson, sérfræðingur í viðskiptagreiningu og þróun markaða hjá Landsvirkjun og Ágústa Loftsdóttir, sérfræðingur í orkumálaráðgjöf hjá EFLU.
- Umræður Guðmundur Þorbjörnsson, forstöðumaður viðskiptaþróunar og nýsköpunar hjá EFLU, Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar, og Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku.
Fundarstjóri: Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun.
Hér er hægt að nálgast upptöku af fundinum: