Fréttasafn



11. maí 2022 Almennar fréttir Félag íslenskra snyrtifræðinga Iðnaður og hugverk

Nýútskrifaðir snyrtifræðingar fá afhent sveinsbréf

Stjórn Félags íslenskra snyrtifræðinga afhenti nýútskrifuðum snyrtifræðingum sveinsbréfin sín við hátíðlega athöfn í Húsi atvinnulífsins 7. maí síðastliðinn en alls útskrifuðust 12 snyrtifræðingar.

Þetta var í fyrsta sinn í tvö ár sem hægt er að halda athöfn vegna sveinsbréfsafhendingar og skáluðu snyrtifræðingarnir ásamt fjölskyldum sínum og meisturum af þessu tilefni.

Á myndinni eru, talið frá vinstri, Snædís Twinkle Snæbjörnsdóttir, Sigrún Ása Guðnadóttir, Íris Ösp Vilhelmsdóttir, Kolfinna Álfdís Traustadóttir, Birgitta Björgvinsdóttir og Svana Ottósdóttir.

Þær sem voru fjarverandi en hlutu einnig sveinsbréf: Hrund Ingvadóttir, Hugrún Lind Geirdal, Júlíana Karvelsdóttir, María Rut Björgvinsdóttir, Sonja Hólm Gunnarsdóttir og Súsanna Sigurðardóttir.

Sveinsbref-mai-2022_2Nýútskrifaðir snyrtifræðingar ásamt Katrínu Þorkelsdóttur, meistara í snyrtifræði, og Rebekku Einarsdóttir, formanni Félags íslenskra snyrtifræðinga.

2022_5Rebekka Einarsdóttir, formaður Félags íslenskra snyrtifræðinga, Jóhanna Vigdís Arnardóttir, viðskiptastjóri hjá SI sem jafnframt var veislustjóri útskriftarinnar, og Brynhildur Íris Bragadóttir sem er í stjórn félagsins.

2022_1

2022_4

2022_3

2022_2