Fréttasafn



15. nóv. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Omnom hlýtur viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun

Omnom súkkulaðigerð hlaut viðurkenningu fyrir bestu fjárfestingu í hönnun 2019. Tilkynnt var um viðurkenninguna á Hönnunarverðlaunum Íslands sem fram fór í Iðnó í gær. Það var Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, sem afhenti Óskari Þórðarsyni, öðrum af stofnendum Omnom, og Veronicu Filippin hönnuði, viðurkenninguna.

Fyrirtækið Omnom sem framleiðir handgert súkkulaði var stofnað af Kjartani Gíslasyni og Óskari Þórðarsyni árið 2013. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars: „Ferlið á bak við vöruþróun er spennandi en Omnom hefur frá byrjun unnið með hönnuðum í öllu framleiðsluferlinu að heildrænni vöruupplifun, hvort sem það er súkkulaðið sjálft eða með vandaðri hönnun á umbúðum og framsetningu í verslunum. Slík samvinna í öllu ferlinu er skýrt dæmi um hvernig hönnun getur haft afgerandi áhrif á vaxtarsögu og velgengni fyrirtækis.“

Myndir: Aldís Pálsdóttir.

Idno7

Wave hringurinn hlaut Hönnunarverðlaun Íslands

Wave eftir Genki Instruments hlaut Hönnunarverðlaun Íslands árið 2019. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, afhenti verðlaunin. Wave er hringur sem hannaður er til að auka upplifun og túlkun í tónlist. Í umsögn dómnefndar segir meðal annars: „Genki Instruments er framsækið og hönnunardrifið tónlistartæknifyrirtæki þar sem hönnun, tækni, verkfræði, og tónlist renna saman í eitt. Wave er einstakt dæmi um framsækna hugmynd frumkvöðlafyrirtækis þar sem rannsókn, þróun og prófanir í gegnum allt hönnunarferlið skilar algerlega nýrri upplifun til notenda sem hefur hlotið lof víða um heim.“ Teymið á bakvið Genki er skipað þeim Ólafi Bogasyni, Haraldi Þóri Hugosyni, Jóni Helga Hólmgeirssyni, Þorleifi Gunnari Gíslasyni og Daníel Grétarssyni.

Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt, hlaut heiðursverðlaun

Í fyrsta sinn í ár voru veitt Heiðursverðlaun Hönnunarverðlauna Íslands sem Manfreð Vilhjálmsson, arkitekt, hlaut.
Í umsögn dómnefndar um Manfreð segir meðal annars: „Hönnun og byggingar Manfreðs Vilhjálmssonar eru meðal bestu dæma um góðan arkitektúr á Íslandi en verkin bera vitni um vandaða hönnun og arkitektúr þar sem efni, form og samhengi skapa eina órjúfanlega heild. Manfreð Vilhjálmsson arkitekt hefur markað djúp spor í sögu arkitektúrs á Íslandi. Einstakur starfsferill sem spannar yfir 60 ár endurspeglar áræðni í fjölbreyttum verkefnum og metnaðarfulla listræna og faglega sýn. Eftir Manfreð liggur fjöldi tímamótaverka sem bera vott um einstaka hæfni til að takast á við margvíslegar áskoranir staðhátta og uppbyggingar í ungu samfélagi.“

Verðlaunin veitt frá árinu 2014

Hönnunarverðlaun Íslands hafa verið veitt árlega frá 2014. Í dómnefnd verðlaunanna 2019 sátu Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, formaður dómnefndar og hönnuður, Hörður Lárusson, grafískur hönnuður, Sigrún Birgisdóttir, arkitekt, Sigrún Halla Unnarsdóttir, fatahönnuður, Daniel Golling sýningarstjóri sænska arkitektúrsafnsins og Edda Björk Ragnarsdóttir frá Samtökum iðnaðarins.

Hönnunarmiðstöð Íslands stendur að verðlaununum, í samstarfi við Hönnunarsafn Íslands og Listaháskóla Ísland og með stuðningi frá Landsvirkjun og Samtökum iðnaðarins. 

Idno3

Idno5Veronica Filippin hönnuður, Óskar Þórðarson, annar af stofnendum Omnom, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Idno2Framkvæmdastjóri SI tók þátt í pallborðsumræðum á málþingi sem haldið var fyrr um daginn.

Idno1