Fréttasafn



13. júl. 2022 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki Orka og umhverfi

Opin vinnustofa um lífsferilgreiningar bygginga

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stendur fyrir opinni vinnustofu um samræmingu lífsferilsgreininga fyrir byggingar hérlendis 11. ágúst næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík kl. 9-11.30. Tilgangur vinnustofunnar er að fá innlegg frá hagaðilum fyrir komandi vinnu við að samræma gerð lífsferilsgreininga fyrir íslenskar byggingar. Tilgangur lífsferilsgreininga (e. Life Cycle Assessment eða LCA) er að reikna heildar umhverfisáhrif sem verða vegna framleiðslu, notkunar og förgunar á vöru eða þjónustu.

Hér er hægt að skrá sig á vinnustofuna.

Mótun samræmdrar aðferðafræði við gerð lífsferilsgreininga fyrir byggingar á Íslandi er að hefjast, í samræmi við aðgerð 5.1.3. í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð. Vegvísirinn kom út í júní 2022 á vegum Byggjum grænni framtíð.

Dagskrá vinnustofunnar:

• Kynning á notkun og samræmingu lífsferilsgreininga á Norðurlöndum: Harpa Birgisdóttir og Matti Kuttinen. Harpa Birgisdóttir er prófessor við Álaborgarháskóla og hefur verið leiðandi við þróun og innleiðingu LCAbyg í Danmörku. Matti Kuittinen er arkitekt og sérfræðingur hjá umhverfisráðuneytinu í Finnlandi. Hann hefur yfirgripsmikla þekkingu á þróun vistvænnar mannvirkjagerðar auk þess að leiða samræmingu lífsferilsgreininga fyrir byggingar á Norðurlöndum.

• Skipulagðar umræður þátttakenda á hringborðum um samræmda aðferðafræði við gerð lífsferilgreinina fyrir byggingar á Íslandi.

Viðburðinn er einnig á Facebook.