Opnunarráðstefna SI á Verk og vit sýningunni í Laugardalshöll
Samtök iðnaðarins verða með opnunarráðstefnu Verk og vit 2026 fimmtudaginn 19. mars kl. 13.00-14.45 í Laugardalshöllinni. Á ráðstefnunni verður kastljósinu beint að fagþekkingu framtíðarinnar í byggingar- og mannvirkjaiðnaði - hvaða hæfni, metnað og fagmennsku vill iðnaðurinn rækta og efla?
Á ráðstefnunni skoðum við hvernig störf og vinnustaðir eru að breytast og hvernig við tryggjum að íslenskur iðnaður búi yfir þeirri færni sem þarf til að takast á við tæknilegar umbreytingar og þróun gervigreindar.
Þátttakendur í dagskrá
- Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
- Sigurður R. Ragnarsson, stjórnarformaður ÍAV
- Páll V. Bjarnason, framkvæmdastjóri fjárfestinga Heima
- Runólfur Þór Ástþórsson, framkvæmdastjóri VSÓ
- Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður gervigreindarseturs Advania
- Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, þróunarstjóri BIM upplýsingatækni hjá Ístaki
- Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans
- Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafal
Í lok ráðstefnunnar er gestum boðið á formlega opnun Verk og vit kl. 15.00.
Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna.


