Beint í efni

Fjölmenni á fundi um starfs­manna­mál í mann­virkja­grein­um

Fulltrúar rúmlega 60 fyrirtækja skráðu sig til þátttöku á félagsfundi Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins um starfsmannamál sem haldinn var í Húsi atvinnulífsins í dag. Fundurinn var haldinn í samstarfi við vinnumarkaðssvið Samtaka atvinnulífsins (SA) og var jafnframt í beinu streymi.

Tilefni fundarins var krefjandi staða í mannvirkjagreinum. Þrengt hefur að húsbyggjendum og öðrum fyrirtækjum í greininni og margir verktakar horfa fram á krefjandi vetur. Við slíkar aðstæður geta vaknað ýmsar spurningar um starfsmannamál og réttindi og skyldur á vinnumarkaði.

Réttindi og skyldur á vinnumarkaði

Á fundinum var farið yfir helstu atriði sem stjórnendur og atvinnurekendur þurfa að hafa í huga þegar kemur að starfsmannamálum. Sérstaklega var fjallað um réttindi og skyldur vinnuveitenda og launþega og þau álitaefni sem geta komið upp þegar breytingar verða á verkefnastöðu og rekstri fyrirtækja.

Áhersla var lögð á hagnýtar upplýsingar sem geta nýst stjórnendum við ákvarðanatöku og meðferð starfsmannamála. Þátttakendum gafst jafnframt tækifæri til að bera fram spurningar og ræða úrlausnarefni sem fyrirtæki standa frammi fyrir.

Mikilvægt að undirbúa breytingar vel

Góð þátttaka á fundinum endurspeglar mikilvægi starfsmannamála fyrir fyrirtæki í mannvirkjagreinum við núverandi aðstæður. Þegar verkefnastaða breytist og rekstrarumhverfið verður krefjandi er mikilvægt að stjórnendur hafi skýrar upplýsingar um þær reglur, réttindi og skyldur sem gilda á vinnumarkaði.

Með fundinum vilja Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins styðja fyrirtæki í mannvirkjagreinum við að takast á við krefjandi rekstrarumhverfi og stuðla að því að breytingar á vinnustöðum séu undirbúnar og framkvæmdar með faglegum hætti.

Félagsmenn sem óska eftir glærum fundarinn setji sig í samband við Kristján Daníel Sigurbergsson, Kristjan@si.is, eða Þorgils Helgason, thorgils@si.is.

Guðmundur Heiðar Guðmundsson, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA, og Íris Mist Arnardóttir, lögfræðingur á vinnumarkaðssviði SA.