Fréttasafn



20. mar. 2019 Almennar fréttir Gæðastjórnun Mannvirki

Öryggismál eru gæðamál

Mannvirkjaráð Samtaka iðnaðarins og IÐAN fræðslusetur boða til fjórða fundar í fundaröð um gæðastjórnun í byggingariðnaði þar sem fjallað verður um öryggismál sem hluta af gæðastjórnun fyrirtækja. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 28. mars kl. 8.30–10.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 1 hæð.

Markmið fundaraðarinnar er að efla og bæta umfjöllun og fræðslu um gæðamál í bygginga- og mannvirkjagerð og búa til vettvang fyrir umræðu um þessi mikilvægu málefni iðnaðarins.

Fundarstjóri er Kristján Daníel Sigurbergsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins.

Dagskrá

· Reynir Guðjónsson, öryggisstjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur

· Anna Jóna Kjartansdóttir, öryggis- og gæðastjóri hjá Ístak

· Bergur Helgason, gæða- og öryggisstjóri hjá ÞG verk

· Umræður

Boðið verður upp á veitingar frá kl. 8.15. Allir eru velkomnir en óskað er eftir skráningu.

Hér er hægt að skrá sig.