Fréttasafn



8. júl. 2026 Almennar fréttir Mannvirki

Óskað eftir athugasemdum við byggingarreglugerð um innivist

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur kynnt drög að fyrsta heildstæða hluta að nýrri byggingarreglugerð um innivist sem fjallar um loftgæði og loftræsingu, ljósvist, raka og hljóðvist. Óskað hefur verið eftir athugasemdum og eru félagsmenn SI hvattir til að kynna sér drögin og senda athugasemdir og ábendingar. Sjónarmið félagsmanna SI eru mikilvæg og geta haft áhrif á endanlega útfærslu reglugerðarinnar.

Markmið endurskoðunarinnar er fyrst og fremst að einfalda reglugerðina og gera hana skýrari. Áherslan er á að færa reglugerðina frá ítarlegum forskriftum yfir í markmiðs- og virknimiðaðar kröfur. Það felur í sér að reglugerðin á í auknum mæli að skilgreina hvaða árangri eða gæðum þarf að ná, en veita jafnframt fagfólki meira svigrúm til að velja þær lausnir sem henta best. Jafnframt er stefnt að því að draga úr óþarfa tilvísunum í staðla og nota þá fremur sem leiðbeinandi viðmið en bindandi kröfur, þar sem það á við. Lögð er áhersla á að þessi einföldun komi ekki niður á öryggi, heilsu eða gæðum mannvirkja.

Hér má nálgast kynningu HMS á fyrsta hluta reglugerðardraganna.

Hér má nálgast reglugerðardrögin og greinargerðina.