Beint í efni

Óskað eftir til­nefn­ing­um vegna um­hverf­is­verð­launa

Hægt er að senda inn tilnefningar fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2020 fram til 11. september.

Óskað eftir tilnefningum vegna umhverfisverðlauna

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2020 sem verða afhent á Umhverfisdegi atvinnulífsins í Hörpu miðvikudaginn 14. október. Hægt er að senda inn tilnefningar fram til 11. september með tölvupósti á netfangið sa@sa.is merkt „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“.

Veitt verða tvenn verðlaun til fyrirtækja sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað. Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:

Umhverfisfyrirtæki ársins

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
  • Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
  • Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
  • Innra umhverfi er öruggt
  • Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið

Framtak ársins

  • Hefur efnt til athygliverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
  • Hefur komið fram með nýjung – vöru, þjónustu eða aðferð sem hefur jákvæð umhverfisáhrif

Að verðlaununum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök iðnaðarins, Samorka, og Samtök verslunar og þjónustu.

NM-001558-SA-umhverfisverdlaun-2020-4x30-mynd
Óskað eftir tilnefningum vegna umhverfisverðlauna - Samtök Iðnaðarins