Fréttasafn



26. sep. 2019 Almennar fréttir Mannvirki

Ráðstefna um tækifæri í PPP á Íslandi

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, er meðal þeirra sem flytja erindi á ráðstefnu sem Arion banki og breska sendiráðið í Reykjavík standa fyrir um fjármögnun innviðaverkefna með samvinnuleið (public-private partnership) fimmtudaginn 3. október næstkomandi kl. 8.30-12.30 í Arion banka í Borgartúni 19.

Fundurinn fer fram á ensku.

Dagskrá
08.30 Morgunkaffi og skráning
09.00 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðarráðherra, setur fundinn.
09.15 Verkefnastjórnun við útboð framkvæmda – Stuart Cairns, Bird & Bird
09.30 Tækifæri í samvinnuleið á Íslandi – Sigurður Hannesson, Samtök iðnaðarins
09.45 Næstu skref – Ásta Fjeldsted, Viðskiptaráð Ísland
10.00 Kaffihlé
10.30 Hvalfjarðargöng – dæmi um verkefni – Gísli Gíslason, Spölur
10.45 Innviðir sem fjárfestingarkostur – Benedikt Gíslason, Arion banki
11.00 Fyrirhuguð löggjöf um PPP-félög – Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra
11.15 Pallborðsumræður og fyrirspurnir
11.45 Lokaorð – Michael Nevin, sendiherra Bretlands á Íslandi

Skráning fer fram á vef Arion banka.