Fréttasafn



18. nóv. 2022 Almennar fréttir Ár grænnar iðnbyltingar Mannvirki Nýsköpun Orka og umhverfi Starfsumhverfi

Rætt um grænan byggingariðnað í sjónvarpsþætti á Hringbraut

Þriðji sjónvarpsþátturinn af fjórum um græna framtíð sem unnir eru í samstarfi Samtaka iðnaðarins og Hringbrautar var sýndur í gærkvöld kl. 20 og endursýndur kl. 22. Fjögur fimmtudagskvöld í nóvember verður þáttaröðin sýnd á Hringbraut þar sem fjallað er um fyrirtæki í iðnaði og hvernig þau nálgast markmið um kolefnishlutlaust Ísland. Umsjónarmaður þáttanna er Guðmundur Gunnarsson. Í þættinum í gær var sjónum beint að grænum byggingariðnaði. 

Þriðji þáttur - grænn byggingariðnaður

Á vef Hringbrautar er hægt að horfa á þriðja þáttinn þar sem rætt er um grænan byggingariðnað. Rætt er við Sigurð Ragnarsson hjá ÍAV, Sigríði Ósk Bjarnadóttur hjá Hornsteini, Sigþór Sigurðsson  hjá Hlaðbæ Colas, Halldór Eiríksson hjá T.ark, Gylfa Gíslason hjá Jáverki og Björgu Ástu Þórðardóttur hjá SI.

Annar þáttur - græn nýsköpun

Á vef Hringbrautar er hægt að horfa á annan þáttinn þar sem rætt erum græna nýsköpun. Rætt er við Ólaf Teit Guðnason hjá Carbfix, Sigrúnu Helgadóttur hjá Norðuráli, Kristinn Aspelund hjá Ankeri, Írisi Baldursdóttur hjá Snerpu Power og Nönnu Elísu Jakobsdóttur hjá SI.

Fyrsti þáttur - græn orkuskipti

Á vef Hringbrautar er hægt að horfa á fyrsta þáttinn þar sem rætt var um græn orkuskipti við Björk Kristjánsdóttur hjá CRI, Björn Inga Victorsson hjá Steypustöðinni, Sigurð Ástgeirsson hjá Ísorku, Auði Nönnu Baldvinsdóttur hjá VOR, Guðmund Þorbjörnsson hjá Eflu og Sigríði Mogensen hjá SI.