Rætt um grænni framkvæmdir á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, er umræðustjóri í einni af fjölmörgum málstofum sem verða haldnar á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem fer fram á Hílton Nordica á morgun 22. október kl. 13.00-15.50. Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.
Málstofan sem Jóhanna Klara stýrir fjallar um græna hvata og grænni framkvæmdir. Þátttakendur í málstofunni eru Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfismála hjá eignarhaldsfélaginu Hornsteini ehf., Atli Þór Jónsson, framkvæmdastjóri Borgarverks, Eiður Páll Birgisson, landslagsarkitekt og meðeigandi Landslags, og Baldur Hauksson, deildarstjóri Tækniþróunar hjá Orkuveitunni. Í þessari tilteknu málstofu á að ræða um tækifæri í grænni framkvæmdastöðum og árangur í því að skila framkvæmdastað sem næst upprunalegu ástandi. Þátttakendurnirnir hafa haft frumkvæði að framkvæmdum sem hafa jákvæð umhverfisáhrif og deila þau reynslu sinni. Farið verður yfir tækifæri, áskoranir og hindranir sem torvelda umhverfisvænar framkvæmdir og hvað þarf til að ryðja þessum hindrunum úr vegi.
Umhverfisdagur atvinnulífsins að þessu sinni fer þannig fram að fyrst eru hin árlegu Umhverfisverðlaun atvinnulífsins veitt fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Framtak ársins. Í kjölfarið taka við tvær lotur af málstofum og er hægt að velja eina af fjórum málstofum í hvorri lotu. Kaffi og tengslamyndum verður á milli málstofa.
Lota 1 kl. 14:00 - 14:40
Fjármagn í grænan farveg – erum við á réttri leið?
- Umræðustjóri: Andrea Sigurðardóttir (Fréttastjóri Viðskipta hjá Morgunblaðinu).
- Inngangserindi: Bjarni Herrera (forstjóri og stofnandi Accrona og rithöfundur Supercharging Sustainability).
- Þátttakendur í málstofu: Heiðar Guðjónsson (fjárfestir), Hreiðar Bjarnason (framkvæmdastjóri fjármála og rekstrar hjá Landsbankanum), Harpa Jónsdóttir (framkvæmdastjóri LSR).
Kolefnisspor og markaðssetning
- Umræðustjóri: Hildur Hauksdóttir (sérfræðingur í umhverfismálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi).
- Þátttakendur í málstofu: Heiðdís Inga Hilmarsdóttir (Verkefnastjóri á sviði sjálfbærnimála hjá Krónunni), Kristín Hrefna Halldórsdóttir (Forstöðuman gæða- og innkaupalausna hjá Origo), Ægir Páll Friðbertsson (Forstjóri Iceland Seafood).
Bransasögur úr sjálfbærnifrumskóginum
- Umræðustjóri: Dr. Hafþór Ægir Sigurjónsson (Forstöðumaður sjálfbærniteymis KPMG).
- Þátttakendur í málstofu: Fyrirtækin Festi og Dagar fara yfir vegferð sína í sjálfbærnimálum.
Sveigjanlegur orkumarkaður
- Umræðustjóri: Bjarni Már Gylfason (Upplýsingafulltrúi Rio Tinto á Íslandi).
- Þátttakendur í málstofu: Katrín Olga Jóhannesdóttir (Framkvæmdastjóri Elmu Orkuviðskipta), Ólafur Davíð Guðmundsson (Tæknistjóri rafmagns hjá Orkunni), Íris Baldursdóttir (Framkvæmdastjóri og annar stofnenda SnerpaPower), Björn Brynjúlfsson (Framkvæmdastjóri Borealis Data Center).
Lota 2 kl. 15:10- 15:50
Grænir hvatar, grænni framkvæmdir
- Umræðustjóri: Jóhanna Klara Stefánsdóttir (Sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá Samtökum Iðnaðarins).
- Þátttakendur í málstofu: Sigríður Ósk Bjarnadóttir (Framkvæmdastjóri umhverfismála hjá eignarhaldsfélaginu Hornsteini ehf.), Atli Þór Jónsson (Framkvæmdastjóri Borgarverks), Eiður Páll Birgisson (Landslagsarkitekt og meðeigandi Landslags), Baldur Hauksson (Deildarstjóri Tækniþróunar hjá Orkuveitunni).
Erum við hætt við orkuskiptin? Áskoranir tengdar orkuskorti
- Umræðustjóri: Almar Barja (Fagsviðsstjóri Samorku).
- Þátttakendur í málstofu: Gnýr Guðmundsson (Forstöðumaður kerfisþróunar hjá Landsneti), Tinna Traustadóttir (Framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun), Guðrún Halla Finnsdóttir (Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Norðuráli).
Græn framtíð á hjólum; endurnýting varahluta í bílaiðnaði
- Umræðustjóri: Gunnar Sveinn Magnússon (Meðeigandi og yfirmaður sjálfbærni- og loftslagsmála hjá Deliotte á Íslandi).
- Þátttakendur í málstofu: Aðalbjörg Kristín Jóhannsdóttir (Netpartar), Björk Theodórsdóttir (Forstöðumaður munatjóna hjá Vís), Jóhannes Jóhannesson (Verkefnastjóri fræðslumála hjá BL), Sandra B. Jóhannsdóttir (Framkvæmdastjóri Úrvinnslusjóðs).
Hvað er með þessar kolefniseiningar?
- Umræðustjóri: Alexandra Kjeld (Umhverfisverkfræðingur hjá Eflu).
- Þátttakendur í málstofu: Hilmar Gunnlaugsson (Stjórnarformaður Yggdrasil), Fannar Jónsson (Gæða- og umhverfisstjóri Bláa lónsins), Hjálmar Steinþór Elíesersson (Gæða- og öryggisstjóri Icelandia).
Hér er hægt að skrá sig.