Beint í efni

Rætt um stöðu sam­göngu­inn­viða á ráðstefnu SI

Rætt var um stöðu samgönguinnviða á ráðstefnu SI í tengslum við sýninguna Verk og vit.

Rætt um stöðu samgönguinnviða á ráðstefnu SI

Samtök iðnaðarins stóðu fyrir ráðstefnu um fjárfestingu í samgönguinnviðum á Íslandi í tilefni af opnun stórsýningarinnar Verk og vit í gær í Íþrótta- og sýningarhölllinni í Laugardal. Á ráðstefnunni var fjallað um aðkallandi fjárfestingaþörf í vegasamgöngum landsins, bæði vegna viðhalds og nýfjárfestinga.

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, var fundarstjóri. Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, flutti erindi með yfirskriftinni Vegasamgöngur á rauðu ljósi. Guðrún Dröfn Gunnarsdóttir, sviðsstjóri samgangna og umhverfis hjá Verkís, flutti erindi með yfirskriftinni Fjárfesting í vegasamgöngum. Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs hjá Vegagerðinni flutti erindi með yfirskriftinni Fjárfesting í vegasamöngum, staða og horfur. Berglind Hallgrímsdóttir, samgönguverkfræðingur hjá Eflu, flutti erindi með yfirskriftinni Umferðin í tölum. Davíð Þorláksson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, flutti erindi með yfirskriftinni Samgöngusáttmálinn: Áskoranir og fjármögnun. Í lok ráðstefnunnar ræddi Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, við Gísla Gíslason, fyrrverandi formann Spalar, og Hjört Þór Steindórsson, forstöðumann fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka.

Hér er hægt að nálgast glærur ráðstefnunnar.

Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá ráðstefnunni.


Auglýsing

SI30-VerkogVit-Dagskra-02-lokautgafa

Rætt um stöðu samgönguinnviða á ráðstefnu SI - Samtök Iðnaðarins