Fréttasafn



26. okt. 2020 Almennar fréttir Mannvirki Nýsköpun

Rafrænn fundur um Arkio

Yngri ráðgjafar sem er deild í Félagi ráðgjafarverkfræðinga standa fyrir rafrænni fundaröð um nýsköpun og nýjar lausnir í mannvirkjagerð. Fundur um Arkio verður miðvikudaginn 4. nóvember kl. 15.00-16.00. Á fundinum mun Hilmar Gunnarsson, stofnandi Arkio, kynna fyrirtækið en Arkio er hönnunarhugbúnaður sem gerir hönnuðum kleift að hanna byggingar eða borgarskipulag með einföldum hætti með VR og AR tækni.

Fundurinn er opinn öllum félagsmönnum á mannvirkjasviði SI. Þeir sem skrá sig á fundinn fá sendan Zoom-hlekk.

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.