Fréttasafn



30. jún. 2020 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Samráðsfundur um útgöngu Bretlands úr ESB

Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, átti samráðsfund með forystufólki úr atvinnulífinu í gær þar sem rætt var um fríverslunarviðræður Íslands, Noregs og Liechtenstein við Bretland sem nú eru að hefjast. Fundurinn fór fram í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni. Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að Samtök atvinnulífsins hafi boðað til málstofunnar að ósk ráðherra en Bretland mun að öllu óbreyttu hverfa úr EES samningnum 31. janúar á næsta ári og því sé brýnt að samkomulag náist um nýjan fríverslunarsamning fyrir þann tíma.

Þar segir jafnframt að utanríkisráðuneytið hafi hafið virkt samráð við hagaðila fljótlega í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu Breta um útgöngu úr ESB í júní 2016. Samráðið hafi miðast annars vegar að því að greina áhrif útgöngu ESB úr EES samningnum á íslenska hagsmuni og hins vegar að móta samningsmarkmið fyrir yfirstandandi viðræður við Bretland um framtíðarsamband ríkjanna. Í lok maí var sett upp sérstök samráðsgátt fyrir hagaðila á vefsíðu Íslandsstofa til að afla nýjustu sjónarmiða og upplýsinga úr atvinnulífinu í aðdraganda fríverslunarviðræðnanna.

Þá kemur fram að haustið 2017 hafi verið settir á fót sérstakir Brexit- vinnuhópar stjórnarráðsins sem hafi átt tugi funda með hagaðilum á hinum ýmsum sviðum. Umfangsmikil greining á hagsmunum Íslands hafi verið birt í nóvember 2017 í skýrslunni Ísland og Brexit: Greining hagsmuna vegna útgöngu Bretlands úr EES. Þá hafi hagaðilar fengið sendar greiningar og upplýsingar um stöðu mála að meðaltali annan hvern mánuð. Þá sé fjallað um þróun mála og undirbúning stjórnvalda í árlegum skýrslum utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál til Alþingis og haldnir hafi verið vel á annan tug kynninga- og upplýsingafunda fyrir hagsmunaaðila.

Fyrir hönd atvinnulífsins sátu fundinn Helga Árnadóttir og Halldór Benjamín Þorbergsson fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins, Árni Sigurjónsson og Sigríður Mogensen fyrir hönd Samtaka iðnaðarins, Ingibjörg Ólafsdóttir og Jóhannes Þór Skúlason fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar, Ægir Páll Friðbertsson og Heiðrún Lind Marteinsdóttir fyrir hönd Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Guðrún Jóhannesdóttir og Andrés Magnússon fyrir hönd Samtaka verslunar og þjónustu, Katrín Júlíusdóttir fyrir hönd Samtaka fjármálafyrirtækja, og Páll Erland fyrir hönd Samorku. Fyrir hönd utanríkisráðuneytisins sátu fundinn, auk Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, Sturla Sigurjónsson, Þórir Ibsen, Borgar Þór Einarsson og Ögmundur Hrafn Magnússon.

Utanrikisraduneytid_hus_atvinnulifsins_fundur_1-1Fyrir hönd utanríkisráðuneytisins sátu fundinn, auk Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, Borgar Þór Einarsson, Þórir Ibsen, Sturla Sigurjónsson og Ögmundur Hrafn Magnússon.

Utanrikisraduneytid_hus_atvinnulifsins_fundur_1-12Sigríður Mogensen og Árni Sigurjónsson sátu fundinn fyrir hönd Samtaka iðnaðarins.

Utanrikisraduneytid_hus_atvinnulifsins_fundur_1-2Halldór Benjamín Þorbergsson og Helga Árnadóttir sátu fundinn fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.

Utanrikisraduneytid_hus_atvinnulifsins_fundur_1-15Katrín Júlíusdóttir sat fundinn fyrir hönd Samtaka fjármálafyrirtækja.

Utanrikisraduneytid_hus_atvinnulifsins_fundur_1-29Páll Erland sat fundinn fyrir hönd Samorku.

Utanrikisraduneytid_hus_atvinnulifsins_fundur_1-28Jóhannes Þór Skúlason og Ingibjörg Ólafsdóttir sátu fundinn fyrir hönd Samtaka ferðaþjónustunnar.

Utanrikisraduneytid_hus_atvinnulifsins_fundur_1-17Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Ægir Páll Friðbertsson sátu fundinn  fyrir hönd Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Utanrikisraduneytid_hus_atvinnulifsins_fundur_1-23Andrés Magnússon sat fundinn fyrir hönd Samtaka verslunar og þjónustu ásamt Guðrúnu Jóhannesdóttur.