Fréttasafn



14. des. 2016 Almennar fréttir

Samtök iðnaðarins mótmæla skipan í samráðshóp

Samtök iðnaðarins mótmæla skipan landbúnaðarráðherra í samráðshóp um endurskoðun búvörusamninga samkvæmt bráðabirgðaákvæði við búvörulög sem samþykkt voru á Alþingi í september. Samtökin telja að ákvæði og markmiði bráðabirgðaákvæðis laga hafi ekki verið fullnægt og hefur ráðherra verð sent bréf þess efnis.

Upphaflega stóð til að 7 aðilar skipuðu fulltrúa í hópinn og að atvinnurekendur hefðu þar jafnt vægi á við aðra. Samkvæmt ákvæðinu skal landbúnaðarráðherra skipa samráðshópinn ekki síðar en 18. október 2016. Samkvæmt ákvæðinu skal „tryggja  aðkomu afurðastöðva, atvinnulífs, bænda, launþega og neytenda að endurskoðuninni og skal henni lokið eigi síðar en árið 2019“, eins og segir í lögunum.

Þann 17. nóvember síðastliðinn skipaði landbúnaðarráðherra samráðshóp og þegar skipunarbréf birtist kom í ljós að búið var að fjölga fulltrúum úr 7 í 12 og koma viðbótarfulltrúar í samráðshópinn nánast allir úr röðum bænda. Þannig hefur vægi atvinnurekenda minnkað verulega og telja samtökin það ekki vera í anda bráðabirgðaákvæðis laganna og ekki í anda þeirra hagsmuna sem eru undir.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri SI, segir búvörusamningana ekki vera einkamál bænda. „Í virðiskeðju verðmætasköpunar í landbúnaði og matvælaframleiðslu í landinu skiptir úrvinnsla landbúnaðarafurða miklu máli. Ekki síður þarf að huga að þeim veigamikla iðnaði sem nýtir landbúnaðarafurðir sem lykilhráefni, gjarnan í samkeppni við innflutning. Við endurskoðun á samningnum er mikilvægt að þessir hagsmunir séu hafðir í huga.“

Samtök iðnaðarins gera því þá kröfu að varamaður fulltrúa atvinnurekenda í samráðshópnum verði gerður að fullgildum fulltrúa í starfi hópsins þannig að margþættir hagsmunir atvinnurekenda heyrist.