Fréttasafn



10. des. 2019 Almennar fréttir Mannvirki

Skortur á virku eftirliti stefnir öryggi landsmanna í hættu

Formenn 12 meistarafélaga á sviði bygginga- og mannvirkjagerðar innan Meistaradeildar Samtaka iðnaðarins hafa sent frá sér eftirfarandi ályktun:

Það er með öllu óásættanlegt að ekkert opinbert eftirlit er með þeim fjölmörgu lögvernduðu iðngreinum sem iðnaðarlögin ná til og engin úrræði til að stöðva ófaglærða aðila sem ganga inn á svið lögverndaðra iðngreina þrátt fyrir kærur til lögreglu og kvartanir til Neytendastofu. Á sviði bygginga- og mannvirkjagerðar er mikilvægt að hægt sé að grípa þegar í stað til úrræða sem stöðva fúskara sem ekki hafa tilskilin lögmæt réttindi. Þar er öryggi og heilsa landsmanna að veði. Meistaradeild Samtaka iðnaðarins hefur barist fyrir þessu um árabil en dæmin sanna að engin úrræði eru til staðar til að stöðva ólögmæta starfsemi í lögvernduðum iðngreinum.

Því er nauðsynlegt að núgildandi iðnaðarlög verði endurskoðuð með það að markmiði að bæta eftirfylgni með lögunum. Störf iðnaðarmanna sem og réttur þeirra til að reka iðnað í atvinnuskyni nýtur lögverndunar og er tilgangur laganna að vernda neytendur, tryggja gæði og fagmennsku enda hafa iðnaðarmenn lokið bóklegu og verklegu námi til að öðlast kunnáttu og færni í faginu.

Þau tólf meistarafélög sem standa að Meistaradeild Samtaka iðnaðarins hvetja stjórnvöld til að koma á virku opinberu eftirliti og tryggja þannig að öryggi og heilsu landsmanna sé ekki stefnt í hættu.

Meistarafélögin 12 sem senda frá sér ályktunina eru:

  • Félag blikksmiðjueigenda
  • Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara
  • Félag skrúðgarðyrkjumeistara
  • Málarameistarafélagið
  • Meistarafélag byggingarmanna á Norðurlandi
  • Meistarafélag húsasmiða
  • Meistarafélag iðnaðarmanna í Hafnarfirði
  • Meistarafélag Suðurlands
  • Múrararmeistarafélag Reykjavíkur
  • Meistarafélag byggingarmanna Vestmannaeyjum
  • Meistarafélag byggingarmanna Suðurnesjum
  • Samtök rafverktaka 


Frettabladid.is, 10. september 2019.

Bylgjan, 10. september 2019.

RÚV, 10. september 2019.

Viðskiptablaðið, 10. september 2019.

Hringbraut, 10. september 2019. 

Eyjan, 10. september 2019.

Skagafréttir, 10. september 2019.

Mannlíf, 10. september 2019.

Bylgjan, 11. september 2019.

Fréttablaðið, 11. september 2019.

Hringbraut, 12. september 2019.