Tækni- og hugverkaþing SI í Hörpu
Stórsókn til framtíðar er yfirskrift Tækni- og hugverkaþings SI verður haldið í Norðurljósum í Hörpu fimmtudaginn 28. nóvember kl. 16.00.
Atvinnugreinar sem byggja á tækni og hugviti hafa ótakmarkaða möguleika á að vaxa. Á þinginu verður ljósi varpað á stöðu hugverkaiðnaðar á Íslandi, kynntar verða fjölbreyttar greinar hugverkaiðnaðarins og tækifæri til framtíðar. Á þinginu kynnir ráðherra aðgerðir í þágu nýsköpunarumhverfisins.
Þátttakendur í dagskrá þingsins
- Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
 - Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
 - Gísli Kr. Katrínarson, framkvæmdastjóri hjá Advania Data Centers
 - Soffía Kristín Þórðardóttir, forstöðumaður hjá Origo
 - Hilmar Bragi Janusson, forstjóri Genís
 - Ingólfur Vignir Ævarsson, markaðsstjóri 1939 Games
 - Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
 - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
 - Valgerður Halldórsdóttir, stjórnarmaður í Sagafilm
 - Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi
 - Tryggvi Hjaltason, formaður Hugverkaráðs SI
 - Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI
 
Boðið verður upp á léttar veitingar að þingi loknu.
Hér er hægt að skrá sig á þingið.


