Þátttaka félagsmanna í stefnumótun Samtaka iðnaðarins
Samtök iðnaðarins buðu formönnum aðildarfélaga, stjórn og starfsmönnum til stefnumótunarfundar á Grand Hótel Reykjavík miðvikudaginn 17. nóvember kl. 8.30-13.00. Á fundinum var farið yfir núverandi stefnu og þann árangur sem hefur náðst með henni á síðustu þremur árum auk þess sem fundargestir tóku þátt í umræðum um styrkleika, veikleika, tækifæri og ógnanir Samtaka iðnaðarins. Fundinum stýrði Stefán Sigurðsson hjá Nordic. Einnig hefur verið leitað til félagsmanna SI eftir innleggi í stefnumótunina en um er að ræða könnun sem Maskína framkvæmir fyrir Samtök iðnaðarins.
Unnið verður úr gögnunum og áformað er að ný stefna liggi fyrir á fyrstu mánuðum nýs árs.
Már Guðmundsson, Valgerður Hrund Skúladóttir, Þorgeir Óðinsson, Steinunn Pálmadóttir og Gunnar Sigurðarson.
Bjartmar Steinn Guðjónsson, Lárus M.K. Ólafsson, Jón Sigurðsson og Guðmundur Fertram Sigurjónsson.
Alexander Jóhannesson, Þorvarður Lárus Björgvinsson og Magnús Hilmar Helgason.
Kristján Daníel Sigurbergsson, Laufey Ósk Magnúsdóttir, Vignir Steinþór Halldórsson og Ída Margrét Jósepsdóttir.
Egill Jónsson, Jóhanna Klara Stefánsdóttir, Lilja Björk Guðmundsdóttir, Tryggvi Hjaltason og Haraldur Bjarnason.
Rannveig Tryggvadóttir, Jónína Guðmundsdóttir, Úlfar Biering Valsson, Friðrik Á. Ólafsson, Valdimar Bjarnason og Eyjólfur Eyjólfsson.
Sigríður Mogensen, Arna Arnardóttir, Ingólfur Bender, Reynir Sævarsson og Helgi Guðjónsson.
Sigurður Hannesson, Stefán Sigurðsson og Árni Sigurjónsson.