Fréttasafn



7. okt. 2019 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Umhverfisdagur atvinnulífsins á miðvikudaginn

Umhverfisdagur atvinnulífsins verður haldinn næstkomandi miðvikudag 9. október í Norðurljósum í Hörpu kl. 8.30-12.00. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Fundarstjóri er Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku.

Dagskrá

Setning Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Umhverfismál og auðlindanýting á Norðurslóðum Heiðar Guðjónsson, formaður Efnahagsráðs Norðurskautsins

Loftslagsbreytingar, lífríki hafsins og auðlindir Jens Garðar Helgason, formaður Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi

Loftslagsbreytingar og fjárfestingar Brynjólfur Stefánsson, sjóðstjóri hjá Íslandssjóðum

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2019 Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, afhendir verðlaunin

Kaffihlé kl. 10-10.30

Samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður samstarfsvettvangsins.

Jákvæðar fyrirmyndir Októ Einarsson, stjórnarformaður Ölgerðarinnar, Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, Þorsteinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Farfugla

Úrgangsmál, samkeppni og hringrásarhagkerfið Bryndís Skúladóttir, verkfræðingur hjá VSÓ

Orkuskipti í flutninga- og hópferðabílum Jón Björn Skúlason, framkvæmdastjóri Íslenskrar Nýorku

Aðlögun að loftslagsbreytingum Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna ohf.

12.00 Súpa, spjall og netagerð

Á vef SA er hægt að skrá sig. 

NM95704-umhverfisdagur-atv.-mynd-logo