Umhverfisdagur atvinnulífsins tileinkaður loftslagsvegvísum
Á rauðu ljósi? er yfirskrift Umhverfisdags atvinnulífsins sem fer fram miðvikudaginn 29. nóvember í Norðurljósum, Hörpu kl. 13.00-15.00. Tengslamyndun milli kl. 15.00-16.00. Dagurinn í ár er tileinkaður Loftslagsvegvísum atvinnulífsins sem afhentir voru Guðlaugi Þór Þórðarsyni umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra á vormánuðum. Þar komu fram 332 tillögur að aðgerðum sem eiga að stuðla að auknum samdrætti í losun atvinnugreinanna.
Dagskrá lýkur með hinum árlegu Umhverfisverðlaunum atvinnulífsins sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir.
Dagskrá
Setning - Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Orkuframleiðsla og aðgengi að orku
- Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, stýrir umræðum
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar IS
- Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
- Auður Nanna Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar H2
Einföldun regluverks
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, stýrir umræðum
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Dr. Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix
- Bogi Nils, forstjóri Icelandair
- Álfheiður Ágústdóttir, forstjóri Elkem Ísland og leiðtogi vegvísis um kísiliðnað
- Aðalheiður Snæbjarnardóttir, forstöðumaður Sjálfbærni hjá Landsbankanum
Fjárhagslegir hvatar til fjárfestinga
- Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, stýrir umræðum
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármálaráðherra
- Björn Ingi Viktorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar
- Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
- Guðmundur Kristjánsson, forstjóri BRIM
Innviðauppbygging
- Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, stýrir umræðum
- Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
- Agla Huld Þórarinsdóttir, yfirmaður sjálfbærnimála Eimskips
- Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborg og leiðtogi vegvísis um vegasamgöngur
- Svandís Hlín Karlsdóttir, framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar hjá Landseti
Lokaerindi
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2023
- Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson afhendir verðlaun fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Umhverfisframtak ársins 2023
Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SAF, Samorku, SFF, SFS, SI og SVÞ
Í tengslum við Umhverfisdag atvinnulífsins er allur nóvembermánuður eyrnamerktur umhverfismálum með áherslu á loftslagsmál. Skráðu þig í áhorf hér á streymisþætti á þriðjudögum og fimmtudögum í nóvembermánuði.
Hér er hægt að skrá sig á Umhverfisdag atvinnulífsins.