Fréttasafn



24. ágú. 2023 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Upplýsingafundur um loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Stofnun Ólafs Ragnar Grímssonar og Loftslagsráð efna til upplýsingafundar um COP  loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna þriðjudaginn 29. ágúst kl. 16-18 í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Þar verður meðal annars rætt um mikilvægi þinganna fyrir alþjóðlega samvinnu um loftslagsmál og fyrir Ísland sem eitt af 197 aðildaríkjum Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. COP fer næst fram í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en var síðast í Egyptalandi. 

Frítt er inn á fundinn á þriðjudaginn og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir. Viðburðinum verður líka streymt.

Dagskrá fundarins er tvískipt, fyrst verða flutt stutt erindi en í kjölfarið verða opnar umræður.

Erindi:

  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  • Ólafur Ragnar Grímsson, formaður Hringborðs Norðurslóða
  • Helga Barðadóttir URN, formaður samninganefndar Íslands gagnvart Loftslagssamningnum
  • Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs
  • Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs
  • Finnur Ricart Andrason, forseti Ungra umhverfissinna

Fundar- og umræðustjóri:

  • Tinna Hallgrímsdóttir, sérfræðingur í loftslagsáhættu og sjálfbærni hjá Seðlabanka Íslands

Leidin-til-COP