Fréttasafn



8. maí 2020 Almennar fréttir Mannvirki

Útboð á þjónustu iðnmeistara

Nú hefur verið auglýst að útboð á þjónustu iðnmeistara séu komin á tilboðstíma en Ríkiskaup, fyrir hönd Ríkiseigna, standa fyrir þessu útboði um viðhald, viðbætur og endurnýjun á fasteignum í eigu ríkisins. Heimilt er að bjóða í einstaka hluta útboðsins. Útboðið og samningar í kjölfar þess taka til alls landsins, en umfang kann þó að vera mismunandi í hverjum hluta útboðsins fyrir sig. Þetta eru þær iðngreinar sem útboðið tekur til:

  • Blikksmíði
  • Dúklagning og veggfóðrun
  • Málun
  • Málmiðn (önnur en blikksmiði)
  • Múrverk
  • Pípulögn
  • Rafiðn (smáspenna og lágspenna)
  • Skrúðgarðyrkja
  • Trésmíði

Tekið er fram í upplýsingum um útboðið að bjóðendur þurfi að uppfylla allar lögboðnar kröfur til að starfa við iðn sína. Á vef Ríkiskaupa er að finna lista yfir aðila að rammasamningum Ríkiskaupa.

Hér fyrir neðan geta félagsmenn SI nálgast hlekki á útboðin sem taka til almennra kaupenda og ríkiseigna: